gummih

gummih@gmail.com

Firefox 3

það sem ég er að skrifa
Eldur og olía
Radiohead spilaðir á gamlan tölvubúnað = snilld
Dwight D. Eisenhower
Margur verður af aurum - blankur
Hlýnun jarðar - Íslendingum að kenna!
111 * √2 * (e^π)^i * 2500^0,2500 / -37
Maríó
Snilld! MugiBoogie yfir netið, ekkert kjaftæði
Kvikmyndanörd
i'm

af Digg.com

úr gagnvarpinu
Ljósmyndakeppni
Baggalútur
Gizmodo
ML-inga grúppa
Arnar Freyr
Einar
Emma og Bjarki
Eyrún og Jobbi
Gunnare
Gommit
Gummi Halldórs
Halla
Hjalli
Hrund frænka
Íris Engill
Lína og Alex
Óskar Páll
Sigurjón Aðalönd
Sindri
Þarfagreinir

gamla draslið

  • apríl 2002  
  • maí 2002  
  • júní 2002  
  • júlí 2002  
  • ágúst 2002  
  • september 2002  
  • október 2002  
  • nóvember 2002  
  • ágúst 2003  
  • febrúar 2004  
  • mars 2004  
  • apríl 2004  
  • maí 2004  
  • júní 2004  
  • júlí 2004  
  • ágúst 2004  
  • september 2004  
  • október 2004  
  • nóvember 2004  
  • janúar 2005  
  • febrúar 2005  
  • mars 2005  
  • apríl 2005  
  • maí 2005  
  • júní 2005  
  • júlí 2005  
  • ágúst 2005  
  • september 2005  
  • nóvember 2005  
  • desember 2005  
  • janúar 2006  
  • febrúar 2006  
  • mars 2006  
  • apríl 2006  
  • maí 2006  
  • júní 2006  
  • júlí 2006  
  • ágúst 2006  
  • september 2006  
  • október 2006  
  • nóvember 2006  
  • desember 2006  
  • janúar 2007  
  • febrúar 2007  
  • mars 2007  
  • maí 2007  
  • júní 2007  
  • ágúst 2007  
  • október 2007  
  • desember 2007  
  • janúar 2008  
  • febrúar 2008  
  • júní 2008  
  • júlí 2008  
  • 8.7.08
    Eldur og olía


    Menn eru loksins að gefast upp á því að reyna að halda því fram að stríðið í Írak hafi ekki verið um olíu. Það sem er verra er að það er eins og samfélaginu sé voðalega mikið sama, eins og enginn sé hneykslaður lengur á því að þarna hafi verið ráðist inn í sjálfstætt ríki (með okkar fulltingi) til að tryggja aukið aðgengi að olíu, "já, þetta var bara um olíu - það vissu þetta allir" er viðkvæðið. Boðskapurinn er auðvitað, ef vestrænt stórveldi beitir yfirgnævandi herstyrk sínum til að svala fíkn sinni í hráefni annarra þjóða, þá er öllum sama, "það vissu þetta allir".
    Nánari umfjöllun hjá New York Times

    3.7.08
    Radiohead spilaðir á gamlan tölvubúnað = snilld


    Stundum þá rekst ég á eitthvað sem mér finnst alveg sjúklega geggjað. Þetta vídeó er einn af þeim hlutum. Þessi náungi tók sig til og remixaði gæðalagið Nude með Radiohead. Gott og vel - en það sem gerir þetta remix sjúklega geggjað er að hann spilar trommurnar með prentara, bassalínuna á skanna, gömul Sinclair Spectrum kemur í stað gítara og síðast en ekki síst þá spilar hann röddina á Thom Yorke á rekka af hörðum diskum! Þetta er auðvitað suddalega hrátt og allt það en einhvernvegin undarlega ávanabindandi - þ.e. ef fólki líkar nýja Radiohead efnið á annað borð.
    Lagið sjálft byrjar eftir rúma mínútu.
    Ó, og svo rakst ég líka á þessa 10 ára gömlu útgáfu af Nude, frekar fyndið að horfa á hana.

    30.6.08
    Dwight D. Eisenhower

    Margir kannast við fræga ræðu Dwight D. Eisenhower sem er m.a. sýnt úr í upphafi myndarinnar JFK (Oliver Stone) og heyra má að hluta í þessu myndskeiði. Þar varaði hann við hættunni á því að her-iðnaðurinn í Bandaríkjunum næði að sölsa undir sig of mikil völd. Hann sagði:
    "In the councils of government, we must guard against the acquisition of unwarranted influence, whether sought or unsought, by the military-industrial complex. The potential for the disastrous rise of misplaced power exists and will persist."
    -- Dwight D. Eisenhower, Farewell Address January 17, 1961

    Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta var ekki einhver "skítugur hippi" sem hataði byssur sem var að mæla gegn her-iðnaðinum heldur var þetta forseti Bandaríkjanna og æðsti yfirmaður heraflans árin 1953-1961. Hann hafði líka þjónað sem hermaður og ekki bara einhver hermaður heldur var hann æðsti yfirmaður sameinaðra hersveita bandamanna í Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta var síðasta stóra ávarp forsetans, hann var að fara úr embætti og þetta var einn af hlutunum sem honum þótti mikilvægast að miðla til fólksins þegar hann var að láta af völdum. Sjáið þið George W. Bush fyrir ykkur að vara fólk við hættunni sem stafar af því að aðilar tengdir her-iðnaði hafi áhrif á stjórnvöld?

    Margt sem Eisenhower sagði var ákaflega áhugavert og verulega ólíkt stefnu repúblikana í dag eins og t.d. þetta:
    "Should any political party attempt to abolish social security, unemployment insurance, and eliminate labor laws and farm programs, you would not hear of that party again in our political history. There is a tiny splinter group, of course, that believes you can do these things. Among them are H. L. Hunt (you possibly know his background), a few other Texas oil millionaires, and an occasional politician or business man from other areas. Their number is negligible and they are stupid."
    -- Dwight D. Eisenhower í bréfi til bróður síns Edgars, 1954

    Fyrir þá sem hafa ekki fylgst mikið með stefnu Texas olíumilljónamæringsins Bush þá vill hann m.a. afnema social security í núverandi mynd. Ekki amalegt fyrir Bush að vera kallaður heimskur af fyrrverandi forseta og flokksbróður sínum úr fortíðinni.

    Svo eru hér enn önnur tilvitnun í Eisenhower.
    "Every gun that is made, every warship launched, every rocket fired signifies in the final sense, a theft from those who hunger and are not fed, those who are cold and are not clothed. This world in arms is not spending money alone. It is spending the sweat of its laborers, the genius of its scientists, the hopes of its children. This is not a way of life at all in any true sense. Under the clouds of war, it is humanity hanging on a cross of iron."
    -- Dwight Eisenhower, April 16, 1953

    Mér finnst ótrúlega magnað að lesa þessar tilvitnanir og mér finnst sem hlutirnir hafi þróast í ranga átt og nú sitjum við uppi með nákvæmlega það sem Eisenhower reyndi að vara heiminn við. Bara í dag eru að birtast fréttir um að auknar líkur séu á innrás Bandaríkjanna inn í Íran. Og þrátt fyrir að tími Bush sé að renna út þá er ennþá verið að skipta út mönnum í yfirstjórn heraflans sem hafa andmælt honum. Ef að af stríði verður þá mun það vera þungur baggi á allri heimsbyggðinni í tugi ára og kristallast það sennilega best í ummælum Robert Gates varnarmálaráðherra um hugsanlega innrás "We’ll create generations of jihadists, and our grandchildren will be battling our enemies here in America.", svo mörg voru þau orð. (Hann velur líka hið óþægilega orðaval "we will" en ekki "we would").

    Best að enda þetta á tilvitnun:
    "I like to believe that people in the long run are going to do more to promote peace than our governments. Indeed, I think that people want peace so much that one of these days governments had better get out of the way and let them have it."
    -- Dwight D. Eisenhower

    Þessar tilvitnanir má finna á Wikipedia: Dwight D. Eisenhower

    14.2.08
    Margur verður af aurum - blankur

    Í þorpi einu birtist einu sinni kaupmaður og kvaðst vilja kaupa apa af þorpsbúum á 1000 krónur stykkið. Þar sem mikið var um apa í nágrenni þorpsins, fóru þorpsbúar að veiða apana og selja manninum þá.

    Kaupmaðurinn keypti þúsundir apa af þorpsbúum á 1000 krónur, en þegar framboðið fór að minnka, bauðst maðurinn til að borga 2000 krónur fyrir apann. Aftur jókst framboðið um tíma, en síðan minnkaði það enn frekar og hætti síðan alveg þar sem erfiðara var fyrir þorpsbúa að finna fleiri apa til að selja.

    Maðurinn tilkynnti þá að hann mundi borga 5000 krónur fyrir hvern apa sem hann fengi, en hann þyrfti að skreppa frá í smá tíma en hann skyldi aðstoðarmaðunn sinn eftir til að sjá um apana sem hann var búinn að kaupa.

    Eftir að kaupmaðurinn var farinn, hóaði aðstoðarmaðurinn þorpsbúum saman og bauðst til að selja því apana á 3500 krónur stykkið. Fólkið gæti svo þegar maðurinn kæmi aftur selt honum apana á 5000 krónur. Þorpsbúar söfnuðu því saman öllu sínu sparifé og keyptu apana af aðstoðarmanninum.

    Síðan hefur ekkert spurst til kaupmannsins eða aðstoðarmannsins.

    Núna veistu allt um hvernig hlutabréfamarkaðurinn virkar.

    14.1.08
    Hlýnun jarðar - Íslendingum að kenna!

    Aha! Ég hef uppgötvað hina sönnu ástæðu hlýnunar jarðar. Flugeldar! Og þá er ég ekki að meina þessar asnalegu gróðurhúsalofttegundir sem losna úr læðingi heldur hina gömlu góðu newtonísku krafta sem eru að verki.

    Það er jú svo að hvert einasta gamlárskvöld breytist Ísland í risavaxinn eldflaugarhreyfil í um klukkutíma eða svo (sjá mynd). Þetta er gert á hárnákvæman hátt (á miðnætti) þegar Ísland snýr beint frá sólinni og flugeldarnir sameina allir krafta sína til að hnika jörðinni ofur-oggu-ponsu-pínu-pínkulítið nær sólinni heldur en síðasta ár. Þetta er svo endurtekið hvert einasta ár svo að alltaf hnikumst við nær og nær sólinni. Þetta er samsæri segi ég!

    Því hverjir eru það sem vilja aukna hlýnun jarðar - kannski við Íslendingar sem nennum ekki að skafa snjóinn af bílnum okkar á morgnanna? Kannski við Íslendingar sem þolum ekki að þurfa að setja á okkur húfu eða detta á rassinn í blankskónum út af þessu hálkudrasli?

    Hvert einasta ár sameinast heil þjóð í illgjörnum tilgangi þess að breyta gangi himintunglanna svo þau þjóni þeirra eigin dutlungum. Hver einasti maður, kona og barn nurlar saman öllum þeim krónum sem þau geta og eiða allri upphæðinni í að kaupa alla þá flugelda sem þau mögulega geta. Fjandsamlegt samsæri fyrir tugi milljarða ár hvert. Ef áfram heldur sem horfir þá endar með því að allir jöklarnir okkar bráðna og öll fínu uppistöðulónin okkar munu þorna upp, sjórinn hækkar þannig að Seltjarnarnesið sekkur og það verður ólíft af hita á Kanarí - hvert ættu þá Íslendingar að fara til að komast á ströndina? Til Færeyja? Eða á Rauðasand?? Þá held ég nú að glansinn væri farinn af. Við ættum að skammast okkar og hætta þessu brjálæði strax.


    Nú eða þá að við gætum tekið upp á því að halda nákvæmlega jafn stórar flugeldasýningar á hádegi þann 1. júlí ár hvert til að vega upp á móti þessu - það ætti að vera ásættanlegt.

    6.1.08
    111 * √2 * (e^π)^i * 2500^0,2500 / -37

    Jæja, þá gerðist það. Þann 4. janúar varð maður loksins og endanlega 111*√2*(e^π)^i*2500^0,2500/-37 ára gamall, merkilegur áfangi það. Afmælisgjafirnar verða seint toppaðar. Til dæmis fékk ég svölustu afmælisgjöf allra tíma frá Hafrúnu, nokkuð sem mig hefur langað lengi í, þennan myndarlega Celestron NexStar 130 SLT stjörnukíki. Geggjuð græja, það er lágmarks vesen að setja hann upp (5-10min) og svo er hann með tölvustýringu þar sem maður slær bara inn hvað maður vill skoða (t.d. Satúrnus eða einhverja stjörnuþoku) og sjónaukinn finnur það fyrir mann. Þegar maður skoðar svo tunglið í honum verður maður nánast hræddur - ég er ekki að grínast með það - þetta er ekkert eitthvað jólaljós, þetta er fokking gargantísk kúla úr hrjóstrugu grjóti sem hangir þarna rétt yfir hausnum á okkur!

    Svo fékk ég tvær eðal bækur í afmælisgjöf líka. Ljósmyndabókina Heaven to Hell eftir David LaChapelle, geigvænlega sterkur stíll hjá honum, svona svolítið út í einhverskonar neón glamúr og er einn vinsælasti listræni ljósmyndari samtímans. Hin bókin sem ég fékk var Earth: Then and Now sem er líka alveg mögnuð bók. Eins og nafnið bendir til fjallar hún um hvernig jörðin er að breytast og bókin samanstendur aðallega af fyrir-eftir myndum. Hún skiptist niður í nokkra kafla, m.a. hlýnun jarðar, náttúruhamfarir, stríðsátök og uppbygging borga og það er merkilegt að sjá hlutina svona svart á hvítu, eins og t.d. breytingarnar í Indónesíu eftir flóðbylgjuna, hvernig skógum í Víetnam var eytt í stríðinu eða bara hvernig Benidorm var ennþá veiðiþorp í kringum 1960.

    Til að toppa daginn fórum við Hafrún svo á Sjávarkjallarann um kvöldið - þvílíkur eðal matur. Við fengum okkur það sem kallast Exotískur matseðill hjá þeim, sem er svona sýnishorn af flestu á matseðlinum hjá þeim. Við fengum sex mismunandi forrétti, allir verulega góðir, m.a. humar og flugfiskahrogn, í aðalrétt var svo lax, skötuselur, saltfiskur og túnfiskur með mismunandi meðlæti og að auki var hreindýr í þremur mismunandi sósum sem er einfaldlega sá besti matur sem ég hef fengið um dagana. Þessu lauk svo með fjórum mismunandi tegundum af ís og lítilli súkkulaðiköku. Alveg ótrúlega góður matur, þetta verður líklegast allt niður á við héðan í frá!!

    10.12.07
    Maríó

    Seinni part sumarsins enduðu langar og strangar samningaviðræður um hvort við ættum að fá okkur gæludýr og hverskonar gæludýr yrði fyrir valinu. Við fengum okkur þennan spræka náunga - sem er af Beagle tegund - hann heitir Maríó og allir á heimilinu telja sig hafa unnið samningaviðræðurnar.

    Hingað til hefur sambúðin gengið ágætlega, það sem helst hefur auðvitað tekið á er þar sem okkur Maríó greinir á um hvað sé eðlilegt og rétt. Honum finnst til dæmis argasti dónaskapur að gera þarfir sínar úti í guðs grænni náttúrunni á meðan við höfum hallast frekar að þeirri skoðun að parketið okkar sé ekkert sjálfsögð staðsetning fyrir slíkar athafnir. Eignarhald húsgagna hefur einnig verið umdeilt efni. Við höfum viljað halda hlutunum að mestu þannig að við sitjum í sófanum og hann liggi á gólfinu en það vill hann alls ekki, enda argasti sóðaskapur að leggjast þar sem maður er vanur að gera þarfir sínar. Til að undirstrika þessa skoðun sína reif hann gat á fóðrið undir sófanum og bjó um sig þar inni, við lítinn fögnuð fyrrverandi eigenda sófans - okkur Hafrúnar. Í örvæntingarfullri tilraun til að slá eign minni aftur á sófann brá ég á það ráð að setja einn af eldhússtólunum upp í sófann áður en ég fór í vinnuna einn daginn, það reyni ég ekki aftur - af ótta við að þá muni ég ekki eiga einn, heldur tvo eldússtóla sem hafa þrjá heila fætur og einn fót sem er af hálfu nagaður af.

    Maríó vann sig þó upp með því að framkvæma áhugaverðar vísindalegar rannsóknir. Til dæmis kom í ljós að kúlurnar inni í hinum illræmdu "Do Not Eat" pökkum virðast ekki vera mjög bráðdrepandi, í það minnsta ekki fyrir sófatætandi Beagle hvolpa, en hann Maríó fann furðulega mikið magn af þessum pökkum inni í sófanum sem hann síðan japlaði samviskusamlega á þrátt fyrir hina augljósu merkingu utan á pökkunum. Síðan dreyfði hann kúlunum úr þeim um allt stofugólfið enda ákaflega hressandi að ganga og hlaupa á þessum litlu hörðu kúlum. Nokkrir aðrir hlutir hafa fengið að kenna á beittum hvolpatönnunum, eins og t.d. um það bil allt sem er innan seilingarfjarlægðar frá honum. Þar með talið wii fjarstýringar, stofuplantan okkar sem mun líklegast deyja þrátt fyrir hetjulega baráttu, heimasíminn sem á einhver dularfullan hátt fannst grafinn undir dýnunni í bælinu hans, þráðlausa músin sem mun bera djúp ör eftir kynni sín af Maríó (þetta virðist ætla að verða veiðihundur) og ýmis fatnaður hefur líka orðið að lúta í lægra haldi fyrir ógnvaldinum skelfilega, þar með talinn skófatnaður.

    Þó það sé ekki hægt að vera lengi reiður við þennan litla gaur (sjá mynd) þá endaði þetta samt með því að gripið var til drastískra aðgerða, sett var upp fangelsisgrind í eldhúshurðina og nú fær Maríó ekki lengur að valsa um alla íbúðina á meðan við erum í burtu. (Eldhúsið gengur núna undir nafninu Azkaban.) Þetta hefur nokkurn veiginn bundið enda á skæruhernað og illdeilur, Maríó neitar að gera þarfir sínar í eldhúsinu, sem hentar okkur ágætlega, og ég hef endurheimt von um að ég muni hugsanlega, vonandi, einhverntíma í framtíðinni, geta slegið eign minni á sófann aftur.

    30.10.07
    Snilld! MugiBoogie yfir netið, ekkert kjaftæði

    Stundum rekst ég á eitthvað sem mér finnst svo mikil snilld að ég hreinlega verð að kjafta því í alla sem ég rekst á (afsakið). Mugison var að gefa út nýjan disk. Tónlistin er frábær en það er þó ekki tilefni þessa bloggs. Málið er að ég er svo ánægður með hvernig hann dreyfir disknum. Maður kaupir hann bara á síðunni hans og getur downloadað honum um leið auk þess sem diskurinn sjálfur er síðan sendur til manns í pósti.

    Við þetta eru fjölmargir kostir. Í fyrsta lagi fæ ég tónlistina mína með lágmarks veseni, downloadið tók enga stund, hún er í góðum gæðum (320kbps) og mp3 útgáfan er allavega gjörsamlega laus við DRM afritunarvarnir þannig að downloadið er actually nothæft fyrir mig (ég hef ekki athugað mp4/ACC downloadið). Ég hlusta talsvert á tónlist - en ég nota ekki geisladiska (á ekki einu sinni geislaspilara) og ef það er eitthvað endalaust vesen að flytja tónlistina á milli tölva eða yfir á símann minn þá er hún ónothæf fyrir mig. Þessvegna skiptir öllu að tónlistin mín sé DRM-laus. Maður fær svo líka sjálfan diskinn þannig að maður er gulltryggður að það verður ekkert vesen og verðið, 1799 kr, verður að teljast sanngjarnt verð (það er enginn sendingarkostnaður). Vonandi fær Mugison sem mest af þessum pening því hann á það svo sannarlega skilið. Það er allt of algengt að millimennirnir hirði allan ágóðan af góðu starfi tónlistarmanna.

    Annað nýlegt dæmi um svipað framtak er nýi diskurinn með Radiohead, In Rainbows. Þar getur maður fengið DRM laust download (160kbps) og maður RÆÐUR hvað maður borgar fyrir það. Án spaugs, þú ræður, þú mátt borga 0kr ef þú vilt (en það er bara fyrir downloadið).

    Vonandi er tónlistarmarkaðurinn að breytast til hins betra eins og hann Hjalli var að tala um, þar sem tónlist er ódýrari fyrir neytendur en gefur meira í aðra hönd fyrir listamennina.

    8.10.07
    Kvikmyndanörd

    60% Movie Freak
    Rakst á þetta heiftarlega góða próf - ég tel mig vita fjandi margt um bíómyndir en fékk þó ekki hærra en 60%

    1.10.07
    i'm

    Ef þú notar Messenger þá er til sniðug leið til að gefa örlítið til góðgerðamála. Maður setur sérstakan kóða í messenger nafnið sitt og þá fer hluti af auglýsingatekjum messenger til málstaðs sem þú velur. Ég sá þetta fyrst hjá Arnari Frey.

    Þetta er mjög einfalt, ef þú setur til dæmis kóðann *unicef fyrir framan messenger nafnið þitt þá ertu strax farinn að gefa pínulítið til barnahjálpar sameinuðu þjóðanna með hverju messenger samtali. (Til að breyta nafninu þínu smellirðu á nafnið þitt í messenger glugganum, velur options og breytir þar textanum í "My display name").
    Eini munurinn fyrir mann sjálfan er að það kemur lítið i'm icon fyrir framan nafnið þitt (ef það kemur ekki þá þarftu að uppfæra messenger til að þetta virki).

    Maður getur svo valið á milli nokkurra málefna til að styrkja, skáletruðu kóðarnir eru það sem maður setur í display nafnið sitt til að styrkja málefnið

    *red+u  American Red Cross
    *bgca  Boys & Girls Clubs of America
    *hsus  Humane Society of the United States
    *naf  National AIDS Fund
    *mssoc  National MS Society
    *9mil  ninemillion.org
    *sierra  Sierra Club
    *help  StopGlobalWarming.org
    *komen  Susan G. Komen for the Cure
    *unicef  U.S. Fund for UNICEF
    Sjá nánar á im.live.com

    Google

    Gagnvarpið
    gummih
    Nýjustu comment:

    Get Firefox!

    ThinkGeek

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting by HaloScan.com

    eXTReMe Tracker atom feed

    Add to iGoogle