|
Matartími
Mikið gríðarlega fer það í taugarnar á mér hvað það fer mikill tími af ævinni í að éta. Fyrir utan tímann sem fer í alla matartímana, þá þarf maður að fara í búðina og kaupa hráefni, blanda þeim saman í réttum hlutföllum og láta malla eftir kúnstarinnar reglum, leggja á borð og svo á eftir þá þarf maður að vaska allt draslið upp, plús það að maður þarf síðan að losa líkamann við stórann hlut af þessum svokallaða "mat". Þetta er bara rugl! Það fer bróðurparturinn úr deiginum í þetta, við eyðum meiri tíma í að sjá okkur fyrir næringu heldur en apar, hverskonar þróun er það!? Ég vil láta framkvæma á mér aðgerð, láta fjarlægja úr mér magann, alla þarmana og ristilinn og setja í staðinn nokkurskonar bensínkút með eins vökva og er settur í æð á fólki. Vökvinn á að innihalda alla næringu sem ég þarf á að halda og skammtast mér í nákvæmlega réttum mæli, engar áhyggjur af kaloríum eða næringarfræði framar. Svo á kúturinn bara að pípa þegar hann fer að verða tómur og þá get ég fyllt á hann, það ætti að þurfa svona sirka mánaðarlega. Rakin snilld, ég þyrfti ekki að vakna eins snemma á morgnanna til að ná að borða morgunnmat, ég þyrfti ekki að vera eins lengi í vinnunni og aðrir og þegar ég er búinn að vinna þá þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur af kvöldmatnum! þannig myndi ég græða aukalega 3 tíma á dag! Núna þarf ég bara að spjalla við lækni sem er tilbúinn að missa leyfið sitt!
|