|
Hvað á ég að gera með 2TB á mánuði?
Eins og ég skrifaði um hér áður þá er ég með frekar nettan hýsingardíl. Ég var í raun bara ánægður með þetta eins og þetta var en þá þurfti dreamhost endilega að gefa mér fría uppfærslu á reikninginn minn. Þannig að núna er ég með 201GB í vefpláss og 2,3terabæt í mánaðarlega bandvídd! (Hversu margir íslenskir vefir fara yfir það?) Hvers á maður að gjalda eiginlega? Ég borga í sakleysi mínu 600kall fyrir domain fyrir bloggið mitt og svo er það uppfært í einhverja asnalega stóra vefhýsingu þannig að ég fæ samviskubit yfir því að vera bara með mitt smánarlega blogg á þessu. Hvað á ég að gera? Allar hugmyndir vel þegnar. Ef aðra langar í svona þá kostar svona 200GB/2TB hýsing með fríu léni bara $10 dollara á mánuði og ef þú borgar ár fram í tímann og gefur promotional code 9999 þá færðu $99 í afslátt, semsagt fyrsta árið fyrir $20 ~ 1400kall. Nánar hérna
|