Jæja, þá gerðist það. Þann 4. janúar varð maður loksins og endanlega 111*√2*(e^π)^i*2500^0,2500/-37 ára gamall, merkilegur áfangi það. Afmælisgjafirnar verða seint toppaðar. Til dæmis fékk ég svölustu afmælisgjöf allra tíma frá Hafrúnu, nokkuð sem mig hefur langað lengi í, þennan myndarlega Celestron NexStar 130 SLT stjörnukíki. Geggjuð græja, það er lágmarks vesen að setja hann upp (5-10min) og svo er hann með tölvustýringu þar sem maður slær bara inn hvað maður vill skoða (t.d. Satúrnus eða einhverja stjörnuþoku) og sjónaukinn finnur það fyrir mann. Þegar maður skoðar svo tunglið í honum verður maður nánast hræddur - ég er ekki að grínast með það - þetta er ekkert eitthvað jólaljós, þetta er fokking gargantísk kúla úr hrjóstrugu grjóti sem hangir þarna rétt yfir hausnum á okkur!
Svo fékk ég tvær eðal bækur í afmælisgjöf líka. Ljósmyndabókina Heaven to Hell eftir David LaChapelle, geigvænlega sterkur stíll hjá honum, svona svolítið út í einhverskonar neón glamúr og er einn vinsælasti listræni ljósmyndari samtímans. Hin bókin sem ég fékk var Earth: Then and Now sem er líka alveg mögnuð bók. Eins og nafnið bendir til fjallar hún um hvernig jörðin er að breytast og bókin samanstendur aðallega af fyrir-eftir myndum. Hún skiptist niður í nokkra kafla, m.a. hlýnun jarðar, náttúruhamfarir, stríðsátök og uppbygging borga og það er merkilegt að sjá hlutina svona svart á hvítu, eins og t.d. breytingarnar í Indónesíu eftir flóðbylgjuna, hvernig skógum í Víetnam var eytt í stríðinu eða bara hvernig Benidorm var ennþá veiðiþorp í kringum 1960.
Til að toppa daginn fórum við Hafrún svo á Sjávarkjallarann um kvöldið - þvílíkur eðal matur. Við fengum okkur það sem kallast Exotískur matseðill hjá þeim, sem er svona sýnishorn af flestu á matseðlinum hjá þeim. Við fengum sex mismunandi forrétti, allir verulega góðir, m.a. humar og flugfiskahrogn, í aðalrétt var svo lax, skötuselur, saltfiskur og túnfiskur með mismunandi meðlæti og að auki var hreindýr í þremur mismunandi sósum sem er einfaldlega sá besti matur sem ég hef fengið um dagana. Þessu lauk svo með fjórum mismunandi tegundum af ís og lítilli súkkulaðiköku. Alveg ótrúlega góður matur, þetta verður líklegast allt niður á við héðan í frá!!