|
Þráðlaust net í Linux
Sem tiltölulega nýr notandi Ubuntu (8.04 64bit) þá er ennþá ýmislegt að koma mér á óvart.
Eitt sem maður heyrði frekar oft um Linux er að það sé svolítið hell að nálgast drivera. Það er kannski eitthvað til í því að fyrir suman búnað er erfitt að fá driver en þetta er þó langt frá því að vera regla. Í dag var ég til dæmis að uppfæra þráðlausa kortið í tölvunni, losaði mig við lítið USB dongle og fékk mér innbyggt PCI kort. Þetta var eins sársaukalaust og hugsast gat. Slökkti á tölvunni, setti nýja kortið í, kveikti aftur og gat strax farið á netið. Ekkert setup, enginn driveradiskur, engin EULA, einfaldlega plug'n'play, núll vesen.
Til að gæta sanngirni verð ég samt að segja að ég var búinn að prófa annað þráðlaust kort áður - það virkaði eins, ekkert vesen í upphafi en tengingin við það vildi oft detta út svo ég setti það í aðra tölvu hjá mér sem er ekki með Ubuntu. Það er því greinilega ekki sama hvaða tegund af netkorti maður fær sér. Það fyrra sem ég prófaði var frá Gigabyte og það var með stöðugt vesen en seinna kortið var CNet CWP-854 og hefur ekki verið með neitt vesen.
Fyrir þá sem eru að pæla í þráðlausu korti fyrir Ubuntu þá mæli ég með að skoða þessa síðu sem er með lista yfir mörg helstu þráðlausu kortin og sagt hvort þau virka eða ekki beint úr kassanum.
|