|
|
Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja
Þessa dagana er ég að koma í loftið nýjum vef. Vefurinn kallast Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja eða bara reynslubrunnur.gummih.com og verður til að byrja með aðallega unninn upp úr skýrslunni Hugbúnaður á erlendan markað Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja Skýrslan var unnin upp úr viðtölum við 27 einstaklinga, þar af marga helstu frumkvöðla og framkvæmdamenn í íslenskri hugbúnaðargerð. Farið var í gegnum viðamikinn spurningalista og í skýrslunni var reynt að draga fram það helsta sem kom fram um þeirra reynslu af því að stofna fyrirtæki, þróa vöru og koma henni á markað erlendis.
Núna er semsagt hugmyndin að gera þessa skýrslu aðgengilega á netinu, gjaldfrjálst að sjálfsögðu, og reyna að skapa í leiðinni umræðuvettvang um efni hennar. Ég er búinn að opna vefinn þó að hann sé ekki fullkláraður og hægt er að lesa hluta skýrslunnar þar nú þegar.
Þarna er farið yfir vítt efni sem snýr að flestu sem viðkemur hugbúnaðargerð og ferlinu við að koma hugbúnaði á erlendan markað. Aðal áherslurnar eru þróun vöru, rekstur fyrirtækis og erlend markaðssetning en að auki er talsvert að efni sem er tileinkað öðrum viðfangsefnum.
Allar hugmyndir og athugasemdir eru vel þegnar og ef þið hafið áhuga á efninu þá er um að gera að kommenta bara við greinarnar ef þið hafið einhverjar athugasemdir.
|
|