|
Endalaus tónlist af Blip.fm
Nýjasta snilldin sem ég hef sokkið í er Blip.fm sem er nokkurs konar riiiisavaxinn tónlistarflakkari eða útvarpsstöð með endalaust af áhugaverðri tónlist og engum auglýsingum. Þarna er að finna svo til öll erlend lög sem manni dettur í hug og ágætt magn af íslenskum lögum líka. Maður getur svo "Blippað" skemmtileg lög og þeir sem eru vinir manns á síðunni fá þau á playlistann sinn. Að auki birtist það sem ég blippa hérna efst á síðunni og hver sem er getur hlustað. Hérna er svo hægt að skoða það sem ég hef Blippað og ég mæli með að prófa leitina til að finna einhverja gullmola.
|