|
|
Framtíðarsýn Þjóðar
Undanfarna mánuði hef ég kynnst nokkru sem ég hef ekki kynnst áður - Virkilega öflugu og skemmtilegu grasrótarstarfi hér á Íslandi. Þar á ég við Hugmyndaráðuneytið sem er búið að vera virkilega iðið og öflugt frá því var komið af stað um áramótin. Þarna er saman komið alveg merkilega breytt samansafn af snilldar fólki víðs vegar úr þjóðfélaginu.
Þetta er ópólitískt og allt er unnið í sjálfboðastarfi. Þarna snýst allt um að virkja fólk til framkvæmda, mynda tengsl og skiptast á áhugaverðum hugmyndum. Þetta er að sjálfsögðu öllum opið og það eru haldnir reglulegir fundir á laugardögum kl 16:30. Auk þess vinnur Hugmyndaráðuneytið að nokkrum sérstökum verkefnum. Sem dæmi um hverju það getur áorkað kom það bréfi í sínu nafni inn á leiðtogafund G20 sem nú er í gangi.
Ég er núna kominn á kaf í sjálfboðastarf hjá Hugmyndaráðuneytinu. Mitt aðal verkefni snýst um að fá þjóðina alla til að mynda sér framtíðarsýn.
Hugmyndaráðuneytið stefnir að því að gera þetta á næstu vikum. Verkefnið kallast Framtíðarsýn Þjóðar og verður nokkurs konar gjöf frá þjóðinni til þjóðarinnar sjálfrar. Verkefnið er metnaðarfullt og stórt í sniðum.
Afraksturinn er tvíþættur. Annars vegar að safna gögnum um gildi og skoðanir þjóðarinnar allrar, en ekki síður að vekja upp umræðuna um þetta brýna málefni, því ef við höfum enga sýn á framtíðina - hvað höfum við þá?
Verkefnisvinnan er nú í fullum gangi og það er við hæfi að nota tækifærið og þakka allan þann stuðning sem verkefnið hefur hlotið hvar sem við höfum barið að dyrum. Við höfum fengið alveg dúndur fólk á sérstaka vinnufundi, stuðning frá HR, HÍ, LHÍ, menntamálaráðuneytinu og dagskrárstjórum bæði hjá Sjónvarpinu og 365.
Það er ótal margt framundan, spennandi hönnun og útfærsla og þrátt fyrir að við séum nú í þeim farvegi að negla verkefnið niður og framkvæma þá erum við alltaf opin fyrir hugmyndum og öll gagnrýni er að sjálfsögðu líka vel þegin.
Verkefni sem þetta stendur og fellur með því hvernig tekst að virkja þjóðina. Þar erum við með fjölmörg járn í eldinum og þetta verða skemmtilegir tímar framundan. Þar erum við að tala um að virkilega nýta tengslin okkar og vinna að framvindu verkefnisins á öllum vígstöðvum. Ætlunin er að þjóðin vinni að framtíðarsýn sinni á milli páska og kosninga, semsagt knappur tími og margt að gerast.
Ef þú vilt vera með, láttu mig þá vita! gummih@hugmyndaraduneytid.is
Við viljum svo nýta allar hendur sem eru viljugar til verks, allir geta hjálpað, hver á sínu sviði. Akkúrat núna erum við t.d. að skima eftir öflugum vefara, grafíker, fólki sem vill taka upp kynningarmyndbönd eða leika í þeim, fólk sem er til í að virkilega vinna í grasrótinni, hendur á plóg!
Allar hugmyndir, gagnrýni, forvitni og spekúleringar eru svo alltaf velkomnar á hugmynd@hugmyndaraduneytid.is
Það verður svo hægt að fylgjast náið með framvindunni á næstu vikum á Twitter gaur Hugmyndaráðuneytisins og svo er hægt að fylgjast með á fésbók líkaFlokkar: framtíðarsýn, Hugmyndaráðuneytið
|
|