gummih

Twitter Updates

heyrðu mig á twitter

gummih@gmail.com

Reynslubrunnur Hugbúnaðarfyrirtækja

það sem ég er að skrifa
Framtíðarsýn Þjóðar
Endalaus tónlist af Blip.fm
Þráðlaust net í Linux
Maður hefði kannski átt að sjá þetta fyrir?
Takk, riddari götunnar!
Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja
Nýsköpun.org
Jæja - og hvað svo?
Forgangsröðina í lag - sólarvörn !!
Eldur og olía

Skrif á Hugmyndaráðuneytinu

úr gagnvarpinu
Nýsköpun.org
Ljósmyndakeppni
Baggalútur
Gizmodo
ML-inga grúppa
Arnar Freyr
Einar
Emma og Bjarki
Eyrún og Jobbi
Gunnare
Gommit
Gummi Halldórs
Halla
Hjalli
Hrund frænka
Íris Engill
Lína og Alex
Óskar Páll
Sigurjón Aðalönd
Sindri
Þarfagreinir

gamla draslið

  • apríl 2002  
  • maí 2002  
  • júní 2002  
  • júlí 2002  
  • ágúst 2002  
  • september 2002  
  • október 2002  
  • nóvember 2002  
  • ágúst 2003  
  • febrúar 2004  
  • mars 2004  
  • apríl 2004  
  • maí 2004  
  • júní 2004  
  • júlí 2004  
  • ágúst 2004  
  • september 2004  
  • október 2004  
  • nóvember 2004  
  • janúar 2005  
  • febrúar 2005  
  • mars 2005  
  • apríl 2005  
  • maí 2005  
  • júní 2005  
  • júlí 2005  
  • ágúst 2005  
  • september 2005  
  • nóvember 2005  
  • desember 2005  
  • janúar 2006  
  • febrúar 2006  
  • mars 2006  
  • apríl 2006  
  • maí 2006  
  • júní 2006  
  • júlí 2006  
  • ágúst 2006  
  • september 2006  
  • október 2006  
  • nóvember 2006  
  • desember 2006  
  • janúar 2007  
  • febrúar 2007  
  • mars 2007  
  • maí 2007  
  • júní 2007  
  • ágúst 2007  
  • október 2007  
  • desember 2007  
  • janúar 2008  
  • febrúar 2008  
  • júní 2008  
  • júlí 2008  
  • október 2008  
  • nóvember 2008  
  • janúar 2009  
  • mars 2009  
  • apríl 2009  
  • 30.4.02

    Eðlisfræðilögmál óvirk um tíma?
    Það virðist sem að einhver óútskýranlegur hlutur hafi valdið því að eðlisfræðilögmál hættu að virka um tíma í gær. Málið er það að ég og kærastan mín vorum að éta ís þegar önnur ísskálin datt í gólfið, það var hughreystandi að sjá að þyngdarlögmálið var enn í fullu fjöri en eftirleikurinn var frekar ógnvekjandi. Ekki nóg með það að skálin skyldi ekki brotna þegar hún lenti á gólfinu heldur lenti hún öfugt, þ.e. ekki á hvolfi. Ég gapti auðvitað eins og álfur á þetta allt saman og þið getið rétt ímyndað ykkur hvað andlitið datt af mér þegar ég sá að allur ísinn var ennþá í skálinni ekkert hafði farið úr henni þegar hún rúllaði niður í gólfið! Heimsmynd mín hrundi. Sem betur fer var ís við höndina til að kæla heilann og sefa taugarnar.

    29.4.02

    LEGO rokk
    Ground control to .... gummi?

    You're the lego Space Man!
    Strap on your helmet! You're the lego space man! You love technology, and look forward to the future. You're brave, active, and strangely attracted to shiny objects.

    Take the "What Lego character are you?" test! by ctbx

    28.4.02

    bloggprófið
    watðe...?

    Þú ert Bre

    Þú hefur yndi af löngum stundum fyrir framan tölvuskjá fullan af óskiljanlegum perl galdraþulum og fílar að deila því með umheiminum hvað þú ert klár tölvukall.

    Taktu hvaða bloggari ert þú prófið hér!

    25.4.02

    Níðvísa um Björn
    ég tók mig til eitt kvöldið og samdi eitt stk. níðvísu um björtustu von sjálfstæðisflokksins
    Flokknum hlíðir alltaf fljótur,
    fjármagnsdýrkun boðar glaður.
    Ógurlega er hann ljótur,
    ekki stærri maður.


    Rusl í póstkassanum mínum
    Andskotans leiðinda fólk alltaf að senda myndir af sér í póstkassann minn!
    Þetta eru bara fölskustu bros ever!
    Myndir þú treysta þessum fölsku brosum fyrir peningunum þínum? Myndir þú hleypa manneskju með svona glæpaglott á smettinu inn á heimili þitt? Björn þjóðleikhússtjóri er sjálfur eins og klipptur út úr Exorcist. Það á einfaldlega ekki við hann að brosa það dregur athyglina of mikið frá eyrunum á honum.

    22.4.02

    Japanir flengja Bandaríkin
    Japanir hafa smíðað hraðvirkustu tölvu í heimi, hún er tæp 40 teraflop sem gerir það nánast vonlaust að spila tetris í henni. hinsvegar er hægt að gera nákvæmt hermilíkan af jörðinni í henni takk fyrir og hún verður notuð til að rannsaka loftslagsbreytingar, jarðhræringar og fleira svoleiðis. Hún er næstum því 5 sinnum hraðvirkari en næsthraðvirkasta tölvan í dag. sú tölva er notuð af bandaríkjamönnum til að framleiða vopn, hversu klassískt er það?

    20.4.02

    3Gs og Coral!
    þetta er bara snilld! Hlustaðu!! Þó Stormskerið sé að sökkva þá taka aðrir við! Hlustaðu líka á þetta! :oD

    19.4.02

    Ný stjarna er fædd
    Ég var að glápa á ungfrú reykjavík áðan og sá þar "nýja" stjörnu fæðast í beinni útsendingu og það var sko enginn annar en látúnsbarkinn bjarni ara! Hann mætti þarna með látúnslúður og puðraði nokkuð snyrtilega í hann bara auk þess sem röddin sveik mann ekki heldur, taktarnir voru nefnilega skratti góðir, þó hann verði nú seint jafn góður og hann Tony. semsagt 4 stjörnur til látúnsbjarnans sem fram til þessa hafði bara verið eitthvað none hit wonder og elvis impersonator í mínum huga.

    18.4.02

    Andskotans fyllerí á virkum dögum
    Hvað á það eiginlega að þýða að fylla blásaklausa stúdenta á virkum dögum. Haldiði ekki að báðir tengdaforeldrar mínir hafi haldið upp á afmælið sitt og pottfyllt aumingja mig með léttvíni, ég held að ég hafi ekki drukkið minna en heila flösku af léttvíni! Svo vöðlaðist maður einhvernvegin heim með leigubíl heim og tókst að tapa gemsanum mínum í leiðinni, allt þeim að kenna! Svo vaknaði maður - allt of seint og algerlega ekki skelþunnur í morgunn og þurfti að hjóla eftir bílnum mínum, í þessari skemmtilegu rigningu. Já það er skelfilegt að vera svona fórnarlamb, eins gott að þetta gerist ekki aftur, reyndar hef ég tryggt það að þetta gerist allavega ekki á laugardaginn en þá ætla ég að heilsa upp á Hjört kunningja og stúta einni viskíflösku saman, ekki þetta görótta léttvín takk!

    16.4.02

    Hvaða prúðuleikari er ég
    Bwaaahahahaaaa, ég svindlaði á prófinu og ég er ...

    You are Animal!
    Your wild and crazy personality endears you to your friends but can sometimes annoy people. You're a great musician, though.


    ég var fyrst fossi eins og gunni en það gekk bara ekki ég vildi vera DÝRI!


    MSN er sorp
    hvernig stendur á því að sæmilega stætt hugbúnaðarfyrirtæki getur ekki höndlað að gera almennilega messenger þjónustu?? þetta er argasta sorp! ég vil geta loggað öll samtölin mín, ætti ekki að vera flókið mál en virðist vefjast fyrir honum Vilhjálmi Hliði. annað atriði er öryggi, hversu heftir þurfa forritararnir að vera til að geta ekki haft dulkóðun á samskiptunum þannig að maður geti sent hvað sem er? Og hvernig í rassgati stendur á því að í svona 4 hvert skipti sem ég reyni að logga mig inn þá er það ekki hægt!! það mætti halda að microsoft sé að reyna að keyra þetta á eigin hugbúnaði!! það liggur við að ég fari að nota iPulse aftur! en svona í fullri alvöru þá mætti nú laga þetta messenger drasl svolítið!

    15.4.02

    sumir eru einfaldlega fátækari í höfðinu en aðrir!
    jæja, þá hafa tjallarnir enn og aftur slegið sjálfum sér við. samkvæmt þessari frétt þá hafa þeir núna birt nákvæmar upplýsingar um hvernig skal byggja kjarnorkusprengju! maður veltir fyrir sér hvaða mannvitsbrekkur hafi samþykkt það "tjahh, blueprint að kjarnorkusprengju það er allt í lagi að birta það, það er nú ekki eins og einhver myndi vilja byggja sér svoleiðis" þetta er sérstaklega sorglegt í ljósi þess að þegar sovétríkin sundruðust þá "tíndist" slatti af bæði úrani og plútóni. það sem var sagt þá var að það þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að skæruliðar og hriðjuverkamenn kæmu sér upp kjarnavopnum því að þó að menn hefðu efnin þá hefðu þeir ekki kunnáttuna til að byggja vopnin. þökk sé tjöllunum fyrir að hafa reddað því svona snarlega fyrir okkur. Saddam, Bin LAden og félagar hljóta að veltast um af hlátri, það þarf enginn að njósna lengur! núna þurfa menn bara að bíða eftir því að tjallarnir blundri upplýsingunum út úr sér og í staðinn fyrir að klóra yfir skítinn þá er fara þeir með hann í blöðin. húrra fyrir breska "heimsveldinu".

    10.4.02

    heimskulega "réttarkerfi"
    Djöfull sem ég er að verða snarvitlaus á því hvað það er tekið vægt á kynferðisglæpum >:o8 Hvernig er eiginlega með þessa dómara? Hvaða veruleikafyrrta manni finnst 18 mánaða fangelsi fyrir að nauðga 7 ára dóttur sinni ítrekað sanngjörn refsing? HVAÐ Á ÞAÐ AÐ ÞÝÐA??? Mér þætti gaman að vita hvað téður dómari hefði talið hæfilega refsingu ef ef að hans dóttir hefði verið fórnarlambið? Það er svo heldur ekkert eins og að þetta séu einhver örfá tilvik, maður heyrir fréttir af svona dómum á svona 2 vikna fresti! Maður hefur á tilfinningunni að þessir dómarar séu að taka við framlögum í forsetaframboðssjóðina sýna. Ef þér finnst að það ætti að þyngja refsingarnar þá geturðu skrifað þig á undirskriftalista. Ef ekkert verður gert í þessu þá verður það bara til þess að fólk fer að taka lögin í sínar eigin hendur. Eins og staðan er í dag þá er það heldur ekkert óalgengt, skemmdarverk, líkamsárásir og jafnvel morð hafa verið framin til að hefna fyrir þessa glæpi. - sem er gott mál á meðan refsingar eru svona heimskulegar.

    9.4.02

    tölvuver
    daginn, ég er búinn að endurskýra nýja tölvuverið okkar með svörtu vélunum. Héðan í frá heitir það Castle Wolfenstein! Það er alveg magnað að koma hingað inn og sjá processing powerið sem er að hamast á þessu, allt uppí 20GHz - magnað! Svo eru einn tveir að leita að einhverju í google, tveir að blogga og einn er að glíma við að nota Rational Rose við litla hrifningu forritsins. Getur annars einhver sagt mér afhverju það forritsskrípi er svo þungt í vöfum að það er varla að svörtu þrumurnar okkar ráði við þær? Maður hefur á tilfinningunni að forritið sé að rendera Toy story 3 í bakgrunninum! Sjálfur vil ég kalla forritið Rassanal Rose sem mér finnst meira viðeigandi nafn, ekki spyrja mig afhverju. Jæja nú er nóg komið í bili, þjóðverjarnir drepa sig ekki sjálfir (alla vega ekki nógu hratt), best að klæða sig í Venominn og ventilatea nokkra, kær kveðja, Bastharður.

    8.4.02

    búinn að gelda lookið
    jaaaaæja, þá er þetta up and running, lookið er fullkomið og nú vantar bara kontent. það er víst réttast að linka á katrínu svo að hún fái nokkur hits og gunna kall svona til að hafa hann góðann. ég þakka svo móttökurnar og mun hugsanlega nota þetta einhverntíma aftur...


    jæja, búinn að gera smávægilegar breytingar á útlitinu og verð ekki ánægður fyrr en það er steingelt og fellur inn í heimasíðuna mína (sem lítur út fyrir að sé unnin af stærðfræðingi sem mér finnst ekki kúl; en hinsvegar skemmtilega gelt...) by the way endilega að tékka á restinni af síðunni minni á henni er mikið af sniðugu dóti af "internetinu"..


    Þetta sökkar, ég þurfti að velja eitthvað template rusl og öll templeitin voru ljótari bloggið hans sindra sem er þó alveg skemmtilega ljótt...

    Google

    Gagnvarpið
    gummih.com
    Nýjustu comment:

    facebook prófíllinn minn

    ThinkGeek

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting by HaloScan.com

    eXTReMe Tracker atom feed

    Add to iGoogle