|
Skamm
Gunnare er nú opinberlega kominn í skammarkrókinn fyrir að hafa ekki bloggað í rúma viku!
Galdraðar rækjur
Ég þoli ekki frystihús sem ráða djöfs töframenn til að frysta rækjurnar sínar. Þessir garlakallar töfra óútskýranlegt magn af vatni inn í hverja rækju áður en hún er fryst, svo þegar vesæll neytandinn þýðir þær þá kemst hann að því að helmingurinn af því sem hann var að kaupa á 800 kr/kg er bara vatn!
Hættur að nöldra um pólitík
Nú er ég hættur að nöldra um pólitík og hef hugsað mér að minnka aðeins þessar persónuárásir >:o)
Best að snúa sér aftur að hversdagslegri hlutum. Til dæmis ef þú ert einstaklingur sem ert búinn að gleyma hvernig á að keyra og ert að leyta að fjarskildum ættingjum meðan þú rásar á milli akreina á 15 km hraða - þá ekki ekki EKKI vera að keyra fyrir framan mig!
Dabbi Juggler
Já hann Dabbi Juggler kann sko á pólitíkina. Eftir alla skandalana sem Sjálfsæðisflokkurinn hefur verið viðriðinn þá var augljóst að kjósendur voru í vígahug. Í stað þess að bíða sjálfur hnekki í alþingiskosningum á næsta ári þá ákvað hann að láta Sjálfsánægjuflokkinn taka skell í borginni í staðinn. Alveg rakin snilld að senda Bjössa í slaginn sem holdgerfing ríkisstjórnarinnar því hann er hinn fullkomni blóraböggull, hann myndi gera hvað sem er til að þóknast flokknum. Nú hafa kjósendur svalað hefndarþorsta sínum og Dabbi ætti að geta haldið vinnunni sinni næsta kjörtímabil...eða er ég bara paranoíd?
Kosningabrill
Jæja þá eru kosningarnar búnar og hvílík úrslit, ég fékk allt sem ég vildi fá fram, og fékk það allt fram með því að kjósa þó aðeins einu sinni!
Nr.1 - Bjössi Bjarna var flengdur all kyrfilega, það var alveg óborganlegt að sjá hann eftir að fyrstu tölurnar komu. Kosningabrossgeiflan var horfin og við var tekið hið rétta andlit gömlu kaldastríðs grýlunnar.
Nr.2 - Gísli Marteinn var sendur aftur í sandkassann að leika sér.
Nr.3 - Helga Hjörvari var bent á það að hann er ágætis pólitíkurspekúlant og gæti gert það gott í Málinu en að það treystir honum ekki nokkur kjaftur, í sandkassann til Gísla félagi.
Nr.4 - Og síðast en ekki síst, vesalings litli maðurinn komst inn, (og þá er ég að meina Óla litla, ekkert dörtí) - p.s. Steini, má byrja setningu á og?
Gísli Marteinn
Hvað er það eiginlega með þennan mann? Júróvisjón fan og hugljúfi aldraðra húsmæðra. Hann var leiðinlegur í kastljósinu, reyndar svo leiðinlegur að stundum velti ég því fyrir mér hvernig í ósköpunum hann gæti orðið leiðinlegri. Hann var ekki lengi að sýna fram á það og fór í pólitík og það fyrir Sjálfumglaðaflokkinn! Hann minnir mig á sumt fólk sem maður hittir á lífsleiðinni, þetta smeðjulega síbrosandi pakk sem er að reyna að fá alla til að líka vel við sig sama hvað það þarf að segja til þess. Nema hvað að maður trúir ekki orði af því sem þau segja, allt sem kemur út úr svona liði eru smeðjulegar lygar, hálfur sannleikur og sjálfshól. Hafiði séð auglýsinguna hans þar sem hann er að tala um hvað hann hafi verið góður í kastljósinu, hvílíkur brandari! Ég held að hann ætti að halda sig við að lýsa Júróvisjón hann er best geymdur þar.
Jæja, hvað á svo að kjósa?
Alveg er ég kjaftstopp þegar ég fer að tala við sjálfan mig um hvað ég ætti að kjósa, ekki kýs ég Sjálfhælnisflokkinn það er víst, Reykjasvíkurlistinn hefur heldur ekki verið að gera það góða hluti að mér finnist hann verðskulda atkvæði mitt og þá liggur bara fyrir að henda atkvæðinu mínu í einhverja sem ná ekki kjöri! Það er frekar súrt! Ég sé ekki tilgang í að skila auðu þar sem þeir eru alltaf flokkaðir með ógildum seðlum og mér sýnist að eina fjörið væri að skrifa vísu á kjörseðilinn. Samt er ég svo valdasjúkur að ég mun áreiðanlega rölta í Hagaskóla á eftir og kjósa einn af litlu flokkunum, kannski að ég taki bara tening með mér, það er sennilega sniðugast.
Íslendingar sigruðu í Júróvisjón!
Mikið var að við unnum loksins í júróvisjón, þetta var orðið frekar pínlegt hvað okkur hefur alltaf gengið illa meðan djöfs Svíar, Danir og meira að segja Norðmenn hafa verið að rúlla þessu upp! Jæja, við getum allavega borið höfuðið hátt núna, vonum bara að það verði okkur ekki of dýrt að halda keppnina að ári.
Textavarpið er dautt, Lengi lifi "internetið"!
Það er loksins ljóst, eftir hatramma baráttu, að textavarpið liggur í valnum. "Internetið" stígur sigurdans og glottir yfir hinum fallna keppinaut meðan það innlimar hann. Textavarpið barðist hetjulega en verður nú að sætta sig við það að "internetið" muni endurskrifa söguna. Sjaldan hafa eins fáir gert jafn skrítið og jafn margir gert minna en ekki sumt!
Bíll til sölu
ég er búinn að setju upp sölusíðu fyrir bílinn minn, fyrstur kemur fyrstur fær!
Múahahjahjaaa ég er mjútant!
Ég var að skoða mig í speglinum í gærkvöld eins og ég geri iðulega og komst þá að því að ég er stökkbreyttur! Ég sá semsagt að ég er með eitt skjannahvítt 4 cm langt hár á hægri augabrúninni! Ég er ekki einusinni að spauga, ef ég toga það niður á við þá nær það niður fyrir augað, ef ég fæ fleiri svona hár þá gæti ég í raun greytt fyrir augun á mér, hversu svalt væri það...? X-men here I come!
Djöfuls svik og pretti
Andskotans nígeríski bisnisskallin er búinn að hreinsa allt út af reikningnum mínum. Ég álpaðist til að láta hann fá leyninúmerið því hann sagðist þurfa tryggingu fyrir því að hann gæti fært sinn hluta af öllum milljónunum út af reikningnum mínum eftir að þær hefðu verið lagðar inn. Svo kom vinur hans á traktór og tók bílinn minn!
Svartsýni og þröngsýni
Ótrúlegt hvað sumt fólk getur verið svartsýnt. Það er eins og að eftir síðasta blogg þá hafi allir sem ég þekki skyndilega orðið sérfræðingar um nígeríska svikahrappa sem hafa ekkert þarfara að gera allan daginn en að svíkja peninga af ólánsömum Íslendingum hérna á skerinu! Það svoleiðis hellist yfir mann neikvæðnin og bölsýnin úr öllum áttum að það hálfa væri nóg! Ég veit ekki einu sinni hvað það er sem fær fólk til að láta svona. Kannski er það útlendingahræðslan, nú eða hreinlega öfundsýkin sem veldur þessu. Skrýtið að fólk skuli vera svona fljótt til að dæma heila þjóð út frá sögusögnum, að fyrst bissness maður sé frá Nígeríu þá hljóti hann að vera svikari!? Ég talaði við þennan mann í gær og hann talaði góða ensku og var bara mjög almennilegur, ég hef ekkert nema gott um hann að segja. Hann hringdi stuttu eftir að ég svaraði póstinum hans og hann fullvissaði mig um að þetta væri allt 100% lögmætt og að um engin svik væri að ræða. Hvað ætti annars fjármálastjóri risa olíufyrirtækis að eyða sínum dýrmæta tíma í að reyna að svíkja einhverjar krónur út úr fátækum námsmanni á Íslandi? Fólk er allt of auðtrúa á einhverjar samsæriskenningar!
"If you don't believe, nothing good will ever happen to you!" - Rodney King
Loksins datt ég í lukkupottinn!!!
Loksins loksins varð ég heppinn, og svo um munar! Haldiði ekki að ég hafi fengið þetta email frá fjármálastjóra nígeríska olíufyrirtækisins NNPC! Hann þarf að millifæra rúmar 14 milljónir dala en getur það ekki því þetta þarf að millifærast í gegnum erlendan reikning. Sennilega vegna þess að hann þekkir engann í útlöndum þá hafði hann samband við mig (hann hefur örugglega verið að sörfa á netinu og dottið inn á síðuna mína) og er að biðja mig um að lofa honum að millifæra peninginn í gegnum reikninginn minn. Fyrir það fæ ég 20% þóknun sem gera 2.8 milljónir dala sem gera 256 MILLJÓNIR KRÓNA handa mér - Lottó Smottó, ég verð vaðandi í seðlum!!! Ég þarf ekki einu sinni að mæta í prófið sem ég á að fara í á morgunn! Þetta er sko ekkert eins og þegar mann dreymir að maður sé svaka ríkur og svo vaknar maður og er voða svekktur, þetta er loksins að gerast í ALVÖRUNNI! $oD
Nokkur fyrirtæki sem ættu að skammast sín
Nú veit ég ekki hvað fólk fylgist vel með auglýsingum. Þó að það sé af sem áður var þegar þetta var uppáhalds sjónvarpsefnið mitt (jólaauglýsingarnar 1984 voru toppurinn) þá sé ég nú alltaf eitthvað af þeim og það eru alltaf einhverjar sem fara nett í taugarnar á manni en svo eru aðrar sem gera mann bara vondann.
Þá er ég sérstaklega að tala um hræðsluáróður sem hefur orðið meira og meira áberandi síðustu ár og hefur alveg þveröfug áhrif á mig heldur en auglýsendurnir vonast til. Tökum Allianz og Vís sem dæmi, þeim finnst þeir ekki vera að hala milljarðana inn nógu hratt svo þeir ákveða að fá fólk til að punga út meiru í líf- og sjúkdómatryggingu. Hugsanahátturinn virðist vera, "hmmmm, við þurfum að fá fólk til að borga okkur fyrir að gefa þeim falska öryggiskennd, en hvernig? Hvað segiði um að við segjum þeim að börnin þeirra geti dáið, annaðhvort í slysi eða úr langvinnum sjúkdómi!". Þessi, "þú gætir vaknað upp dauður á morgunn" áróður er óþolandi! Þið vitið kannski hvaða auglýsingar ég er aðallega að tala um, "vasi og barn detta niður úr blokk, hvort viltu fá fleiri krónur fyrir þegar það lendir á stéttinni?" frá Allianz og "Doddi hélt að ekkert illt gæti hent hann, en hann fékk sko heldur betur á baukinn - eins gott að þú sérst ekki svona bjartsýnn og vitlaus!" frá Vís og Landsbankanum að ég held. Alltaf þegar ég sé þessar auglýsingar þá hugsa ég "aah, já, muna að skipta aldrei við þessa fávita!" sem er væntanlega ekki áætlunin.
Þó að tilgangurinn með Þjóðarsálinni sé ekki að gera neitt í málunum þá hef ég nú samt hugsað mér að bregða út af venjunni í þessu tilviki og ætla að hætta að tryggja bílinn minn hjá Vís. Nú veit ég nefnilega afhverju þeir hækkuðu iðgjöldin svona svívirðilega fyrir rúmu ári, það var til að geta fjármagnað þessa auknu sókn þeirra inn á líf- og sjúkdómatryggingarnar og eru meðan þetta er skrifað að eyða peningunum mínum í svona gríðarlega heimskulegar auglýsingaherferðir.
Smjörvi er svindl
Hann þykist vera voða mjúkur svo er hann bara harður.
|