gummih

Twitter Updates

heyrðu mig á twitter

gummih@gmail.com

Reynslubrunnur Hugbúnaðarfyrirtækja

það sem ég er að skrifa
Framtíðarsýn Þjóðar
Endalaus tónlist af Blip.fm
Þráðlaust net í Linux
Maður hefði kannski átt að sjá þetta fyrir?
Takk, riddari götunnar!
Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja
Nýsköpun.org
Jæja - og hvað svo?
Forgangsröðina í lag - sólarvörn !!
Eldur og olía

Skrif á Hugmyndaráðuneytinu

úr gagnvarpinu
Nýsköpun.org
Ljósmyndakeppni
Baggalútur
Gizmodo
ML-inga grúppa
Arnar Freyr
Einar
Emma og Bjarki
Eyrún og Jobbi
Gunnare
Gommit
Gummi Halldórs
Halla
Hjalli
Hrund frænka
Íris Engill
Lína og Alex
Óskar Páll
Sigurjón Aðalönd
Sindri
Þarfagreinir

gamla draslið

  • apríl 2002  
  • maí 2002  
  • júní 2002  
  • júlí 2002  
  • ágúst 2002  
  • september 2002  
  • október 2002  
  • nóvember 2002  
  • ágúst 2003  
  • febrúar 2004  
  • mars 2004  
  • apríl 2004  
  • maí 2004  
  • júní 2004  
  • júlí 2004  
  • ágúst 2004  
  • september 2004  
  • október 2004  
  • nóvember 2004  
  • janúar 2005  
  • febrúar 2005  
  • mars 2005  
  • apríl 2005  
  • maí 2005  
  • júní 2005  
  • júlí 2005  
  • ágúst 2005  
  • september 2005  
  • nóvember 2005  
  • desember 2005  
  • janúar 2006  
  • febrúar 2006  
  • mars 2006  
  • apríl 2006  
  • maí 2006  
  • júní 2006  
  • júlí 2006  
  • ágúst 2006  
  • september 2006  
  • október 2006  
  • nóvember 2006  
  • desember 2006  
  • janúar 2007  
  • febrúar 2007  
  • mars 2007  
  • maí 2007  
  • júní 2007  
  • ágúst 2007  
  • október 2007  
  • desember 2007  
  • janúar 2008  
  • febrúar 2008  
  • júní 2008  
  • júlí 2008  
  • október 2008  
  • nóvember 2008  
  • janúar 2009  
  • mars 2009  
  • apríl 2009  
  • 30.7.02

    Sláttur
    Jæja, ég ákvað um daginn að fá mér nýja klippingu. Að ape-cut væri ekki málið lengur og fékk Hafrúnu til að gefa mér 1cm kiwi-cut, vandlega snirt á hliðunum og að aftan að sjálfsögðu. Datt bara í hug að láta alla vita svo að þið þekkið mig aftur...

    24.7.02

    Hriðjuverkaþurrkarar
    Ég ætla aldrei framar að þurrka fötin mín í þurrkara. Ég hef nefnilega komist að hinum sjokkerandi sannleik varðandi þurrkara. Þeir eru í raun ekkert annað en risastórir cyborg naflar! Nú segja kannski sumir að ég sé geðveikur, en ég veit betur og það sem meira er þá hef ég sönnur fyrir máli mínu. Naflakusk! Þetta annars-heims efni sem myndast í nöflum flestra fullvaxinna karlmanna, lengi vel hélt ég að þetta efni kæmi hvergi annars staðar fyrir í alheiminum en þar. Þar til að ég áttaði mig á því að þurrkarar framleiða líka naflakusk og í gríðarlegu magni! Hver svo sem ástæðan er á bakvið framleiðslu þessara gríðarstóru nafla er þá er ég handviss um að það eru uppi áform um að nota naflakusk í illum tilgangi, borgaryfirvöld gætu átt stóran þátt í þessu, því hvert fer þurrkara-naflakuskið? Jú í ruslið og hverjir eyða gríðarlegum fjármunum í að safna rusli og FLOKKA það? Kommon, þetta liggur í augum uppi, ég tel að borgaryfirvöld séu að framleiða gereyðingarvopn úr naflakuski og ætla að segja sig úr lögum við Ísland!! En þau fá sko ekki naflakusk úr þurrkurum frá mér, nósörí, hér eftir þurrka ég fötin mín í örbylgjuofninum!

    23.7.02

    Spurning um tilgang
    Til hvers brennir maður á sér fingurna? Frá því að ég man eftir mér hef ég verið að brenna mig á fingrunum með vissu millibili. Ég brenndi mig einmitt áðan þegar ég var að taka lok af mallandi pönnu og sjóðheit gufan lék við fingurinn á mér og ég hugsaði með mér "þetta fer nú að verða svolítið pirrandi!" Þetta er auðvitað bara spurning um tilgang og sjálfur sé ég sáralítinn ávinning í þessari iðju. Ég hef þessvegna tekið þá ákvörðun að hætta að brenna mig á fingrunum frá og með deginum í dag, þannig að ef þú hafðir hugsað þér að biðja mig um að rétta þér gullúrið þitt sem þú misstir ofan í djúpsteikingapottinn þá geturðu gleymt því!!

    22.7.02

    Afgreiðslufólk - annar hluti
    Já það er eitthvað með þetta afgreiðslufólk, ég fór áðan í Nóatún og eins og svo oft áður bað ég um að taka 1000 kall aukalega af kortinu. Mér til mikillar furðu samþykkti afgreiðslustrákurinn það án málalenginga og sýndi það að hann er væntanlega fulltrúi þeirra 10% afgreiðslufólks sem ég ræddi ekki um síðast. Hann stimplaði inn upphæð sem var 1000 krónum hærri en það sem ég var að kaupa, ég kvittaði fyrir og hann sagði "takk fyrir" - en enginn 1000 kall! Ég þurfti að stöðva hann í því að fara að afgreiða næsta kúnna til að betla 1000 kallinn minn af honum. Djöfulsins drasl!!

    19.7.02

    Afgreiðslufólk
    Hvað er að öllu þessu afgreiðslufólki, í hvert einasta sinn sem ég vil taka aukalega pening af debetkortinu þá segi ég "gætirðu svo tekið 1000 kall aukalega" hljómar einfalt er það ekki? En 90% af öllu starfsfólki segir "..?...ööööö....á ég ... sko ... að taka akkúrat 1000 eða ... 1000 kall yfir eða ...???" og þá segi ég "1000 kall aukalega", hvað er AÐ?

    18.7.02

    Ó, undur og stórmerki!
    Sjónvarpið mitt er risið upp frá dauðum, sagði manninum með ljáinn bara að hipja sig! Ótrúlegt, ég ákvað svona upp á djók að prófa að kveikja á því svona einu sinni enn og presto! allt í þessu fína, magnað, ágjarnir blogg lesendur sem höfðu hugsað sér að koma og ná sér í frítt sjónvarp verða því að bíða aðeins lengur eftir því að það hrökkvi endanlega upp af.

    17.7.02

    Antíkbensíndælur
    Hversvegna í skrattanum stendur á því að bensíndæluhandföng eru svona heimskulega útfærð? Þetta er hönnun síðan á millistríðsárunum! Maður þarf að bogra við þetta helvíti og halda handfanginu inni takk fyrir meðan maður dælir, því að þó að það sé sérstakur fítus til að hætta að dæla þegar tankurinn er fullur þá er sjaldnast græja til að halda handfanginu í dælingu. Svo er eins og að einhverjir spekúlantar hafi ákveðið að þetta væri besta útfærsla sem skynsamlegt væri að bjóða almúganum. Afhverju í andskotanum er ekki hægt að skella bara slöngunni í tankinn og stilla svo á dælunni sjálfri hvað maður vill mikið bensín, smella á takka og bíða? En nei það væri of auðvelt, þess í stað verður maður að standa boginn í baki með vitin í bensíngufunum haldandi um handfangið sem á veturna verður jökul frjósandi kalt! Persónulega held ég að þetta sé í raun valdafíkn bensínkónganna sem í brjálæði sínu vilja að við "þegnarnir" bugtum okkur og beygjum þegar við dirfumst að ná okkur sjálf í bensín til að borga þeim örfáum krónum minna.

    16.7.02

    Djös' síbrosandi pakk
    Ég treysti ekki höfrungum, alltaf síbrosandi, þeir eru að plotta eitthvað!

    15.7.02

    Matartími
    Mikið gríðarlega fer það í taugarnar á mér hvað það fer mikill tími af ævinni í að éta. Fyrir utan tímann sem fer í alla matartímana, þá þarf maður að fara í búðina og kaupa hráefni, blanda þeim saman í réttum hlutföllum og láta malla eftir kúnstarinnar reglum, leggja á borð og svo á eftir þá þarf maður að vaska allt draslið upp, plús það að maður þarf síðan að losa líkamann við stórann hlut af þessum svokallaða "mat". Þetta er bara rugl! Það fer bróðurparturinn úr deiginum í þetta, við eyðum meiri tíma í að sjá okkur fyrir næringu heldur en apar, hverskonar þróun er það!? Ég vil láta framkvæma á mér aðgerð, láta fjarlægja úr mér magann, alla þarmana og ristilinn og setja í staðinn nokkurskonar bensínkút með eins vökva og er settur í æð á fólki. Vökvinn á að innihalda alla næringu sem ég þarf á að halda og skammtast mér í nákvæmlega réttum mæli, engar áhyggjur af kaloríum eða næringarfræði framar. Svo á kúturinn bara að pípa þegar hann fer að verða tómur og þá get ég fyllt á hann, það ætti að þurfa svona sirka mánaðarlega. Rakin snilld, ég þyrfti ekki að vakna eins snemma á morgnanna til að ná að borða morgunnmat, ég þyrfti ekki að vera eins lengi í vinnunni og aðrir og þegar ég er búinn að vinna þá þarf ég ekki að hafa neinar áhyggjur af kvöldmatnum! þannig myndi ég græða aukalega 3 tíma á dag! Núna þarf ég bara að spjalla við lækni sem er tilbúinn að missa leyfið sitt!

    14.7.02

    Sálarkreppa
    Í gær fór ég með glænýja tölvu til Óla vinar míns sem að ég hafði keypt og sett upp fyrir hann. Þetta var glimrandi góð vél og ef að vélin hans Óla er Ferrari þá er vélin mín BMX! Þið getið ímyndað ykkur hvernig mér líður, nokkurnveginn eins og að vera smiður og þurfa að nota múrstein fyrir hamar! En jæja, það þýðir víst ekki að væla yfir þessu, því næst þegar ég kaupi mér tölvu þá skal það sko vera algjör þrusa, og þá skal ég sko hlæja að ykkur öllum, ÖLLUM segi ég, BWAaaaHAahahahahaarrr!!!! - ...eða ekki?

    13.7.02

    XM 101
    Gríðarlega er pirrandi að láta henda bjórflösku í höfuðið á sér. Þetta kom fyrir mig í gær, var í biðröð fyrir utan Circus þegar ég heyrði hátt brothljóð og fannst eins og ég hefði verið kýldur í höfuðið. Ég leit í kringum mig og sá slatta af glerbrotum úr smallaðri Corona flösku skoppa niður á jörðina og lagði saman tvo og tvo. Greppitrínið sem kastaði henni komst undan á bílhræi með númerinu XM 101, nú er bara að fara með tvo "harða rörlemjandi negra með tangir og lóðbolta" og kenna honum og ökumanninum smá lexíu í almennum mannasiðum.
    Svo ég snúi mér að léttara hjali þá þakka ég Flash og Boris fyrir sérstaklega velheppnað rugl í gær.

    9.7.02

    Maðurinn með ljáinn í heimsókn
    Við fengum heldur óskemmtilega heimsókn nýverið. Maðurinn með ljáinn kom að heimsækja sjónvarpið okkar, sem er semsagt farið til feðra sinna núna. Kannski ekki svo mikill skaði, eintómt helvítis drasl í því hvort eð er, en það er samt pirrandi að geta ekki horft á video. Ef einhvern langar í Bang&Olufsen Beovision 7700 sjónvarp þá má hann/hún koma og sækja það. Þetta er sama týpa og fyrsta litasjónvarpið sem pabbi og mamma fengu sér og því fylgir fjarstýring úr málmi, reyklaust tæki, ekkert áhvílandi!

    6.7.02

    Da-ra-dad-daaaa Da-ra-daaaa
    Ég er Indiana Jones hasarstjarnan, það þýðir sennilega að ég fer að fá ellilífeyrinn fljótlega..?

    Which Action Star Are You? Find out @ She's Crafty

    3.7.02

    Tölvunarfræðinemi til sölu
    Lítið notaður tölvunarfræðinemi til sölu, árgerð 1978, vel með farinn, 156iq. Kjörinn til hvers kyns hugbúnaðargerðar og hefur einnig verið notaður í kerfisumsjón. Þetta er gott eintak, reyklaus og hlaðinn aukabúnaði: GSM, nýleg tímareim (úr), Gleraugu (-6.0), vasaljós og fl. Áhvílandi námslán. Engin skipti koma til greina, selst hæstbjóðanda!

    Google

    Gagnvarpið
    gummih.com
    Nýjustu comment:

    facebook prófíllinn minn

    ThinkGeek

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting by HaloScan.com

    eXTReMe Tracker atom feed

    Add to iGoogle