|
Gamlar sálir
Jæja, þá er ég loksins búinn að laga archives hjá mér. Núna er hægt að skoða gömlu sálirnar mínar í rammanum til hægri og # hlekkirnir eru farnir að virka. Varist samt mikla vitleysu sem leynist í þessu drasli...
Ég hef komist að niðurstöðu
Hellisbúar voru í eðli sínu gríðarlega sniðugir!
The Sith Lords
Always two there are, a master and an apprentice!
Holland er sokkið
Í kjölfar hinna gríðarlegu flóða í Evrópu undanfarið gerðist það sem margir höfðu óttast að Holland sökk. Ósköpin byrjuðu kl 12:28 í nótt að íslenskum tíma þegar flæða fór upp úr klósettum í Amsterdam eftir að klóakdælustöðvar sem sjá um að dæla öllu klóaki Amsterdam til Lúxemborgar gáfu sig. Enginn fannst sem var nægilega fingrastór til að stöðva flóðið og því fór sem fór, straumurinn ágerðist eftir því sem leið á og flóðin komust ekki út á sjó vegna gríðarlegra varnargarða Hollendinga. Fulltrúar Evrópusambandsins sögðu að enginn tilfinnanlegur missir væri í Hollandi, flestir hefðu fyrir löngu hætt að búa í vindmillum svo að fasteignamarkaðurinn í Hollandi var að hruni kominn. Þegar flogið var yfir svæðið í morgun sást ekkert sem minnti á að þar hefði verið þurrt land í gær, nema gríðarstórir flákar af tréklossum sem má sjá á víð og dreif. Þeim sem vilja minnast Hollands er vinsamlegast bent á Kristjaníu, blóm og kransar, og sérstaklega túlípanar, eru afþakkaðir.
Prófessor nær dauða en lífi
Ég var á rúntinum á Suðurgötunni áðan þegar alveg hreint gríðarlegur prófessor ákvað að ganga yfir götuna án þess að líta eftir bílum. Hann var greinilega í þungum þönkum því hann gekk lengi vel eftir götunni og ég var næstum búinn að tæta yfir greyið. Er ekki hægt að fá eitthvað lið sem á að sjá um þessa kalla og passa að þeir labbi ekki út í umferð og svona, leikskólakennarar eru auðvitað vanir svona löguðu. Það væri kannski nóg að dreifa einum til tveim við Suðurgötuna sem er áreiðanlega mesta dauðagildran fyrir prófessorastofninn okkar.
Táneglur eru bara sorp!
Til hvers í ósköpunum eru táneglur, gersamlega tilgangslaust prjál. Maður þarf að klippa þetta reglulega og svo til hátíðabrygða tekur ein og ein upp á því að breikka og vex inn í tánna á manni! Ég segi burt með þetta drasl, er ekki hægt að láta fjarlægja þetta fyrir fullt og allt?
Sissí eða ekki sissí?
Ef ég borða Lucky Charms í morgunnmat hvort er ég þá sissí eða einfaldlega öruggur í karlmennsku minni? - og afhverju er ekki hægt að kaupa Trix lengur?
Skatturinn er góður gæi
Jamm 18 stórir seðlar frá skattinum. Ekki það versta sem gat gerst!
|