|
Tóm tjara
Sem sérlegur áhugamaður um malbik þá hef ég stundum verið að velta því fyrir mér hvað sé að þessum mönnum sem stjórna malbikuninni. Aðal efnið í malbikið er annarsvegar grjót og hinsvegar tjara og undanfarið hefur mér virst að það sé alltaf minna og minna grjót í nýju malbiki en alltaf meiri og meiri tjara. Það er svo þessi extra tjara sem sest á bílinn hjá manni þannig að maður þarf veghefil til að þrífa á honum lakkið, það er tjaran sem sest á dekkin á bílnum þannig að hann verður eins og belja á svelli og verður til þess að á hverju ári er sett nýtt met í árekstrum. Svo er allt þetta extra svarta ryk sem sest á gluggasyllurnar hjá þér á veturna, það er tjara. En hvernig stendur eiginlega á þessum vinnubrögðum. Er grjótskorturinn á höfuðborgarsvæðinu orðinn svo mikill að tjara er orðin ódýrari en grjót? Eða borgar þetta sig vegna þess að tjara spænist auðvitað upp en grjót sér um að malbikið þoli slit og með því að spara grjótið þá endist malbikið í 3 í staðinn fyrir 6 ár og þá þarf að fá malbikunarkallana aftur? Þetta er samsæri segi ég!! Samsæri!!! (... og ég vil líka græða á því!)
Nú er komið nóg af þessari vitleysu
Hvar ætla þessar endurtekningar á RÚV að enda? Núna sýnist mér að þeir séu að endursýna kastljós síðan fyrr í kvöld með hljóðinu síðan í síðustu viku ... eða eitthvað. Bara að loka þessu dóti, bara eldisstöð fyrir unga sjálfstæðismenn hvort eð er.
Vei fyrir hetjunum
Jæja, þá er loksins hægt að blogga aftur ... þetta var erfið vika.
Ég bremsa ekki
Stundum þegar ég er að keyra úti í sveit um kvöld eða nótt þá hleypur hagamús yfir veginn. Ég hef alltaf reynt að valta ekki yfir þær hingað til en ég er að hugsa um að hætta því, reyna frekar að splatta þær hér eftir. Það eru nefnilega ekki svo margar leiðir fyrir hagamús til að deyja. Þær geta orðið veðrinu að bráð, soltið til dauða, frosið í hel nú eða drukknað í músarholu í heví rigningum. Þær geta verið étnar lifandi af hundum, köttum, minkum, rottum, refum, uglum, name it! Og einstaka kvikindi álpast í músagildru og er kramið, límt niður eða drekkt. Allt eru þetta frekar súrir dauðdagar fyrir aumingja mýsnar en það er ein og ein mús sem sleppur við þá. Þessar örfáu heppnu mýs sjá bara skínandi bjart ljós og wwwwwwwwwWHAAAMM! Enginn sársauki, bara fallegt ljós og svo er allt búið. Þessvegna er ég hættur að bremsa fyrir músum, af því að ég er músavinur!! hmmmmmm..?
Fjarstýringar
Í dag vil ég tala um fjarstýringar. Hvað eru til margar fjarstýringar á einu heimili? Ein fyrir hvert sjónvarp, ein fyrir afruglarann, ein fyrir hvert video, ein fyrir hverjar græjur, DVD, heimabíó ... ok, allavega ansi margar fjarstýringar, segjum 5 stykki á meðal heimili (hjá bróður mínum eru allavega 13 í notkun). Hvað eru þá margar fjarstýringar í hinum vestræna heimi? Hvað gera svo allar þessar fjarstýringar? Jú, þær skjóta innrauðum geislum út í allar áttir og vonast til að einhverjir þeirra hitti sjónvarpið, vídeóið, eða hvaðanúer. Á heimsvísu er þetta gríðarlegt magn af innrauðum geislum sem kemur frá þessum masssa af fjarstýringum. Og eins og við vitum þá er innrauðir geislar bara eitthvað fansí orð yfir hitageisla. Ef við berum síðan saman umræðuna um "hitun jarðar" eða "global warming" eins og það heitir víst í útlöndum þá kemur fram greinilegt samband á milli hitunar jarðar og fjölda fjarstýringa í heiminum. Fjarstýringar fóru að ryðja sér til rúms um 1980 og fljótlega eftir það fóru vísindamenn að spá því að við myndum stikna og að við myndum brenna í mjög svo náinni framtíð. Tilviljun?!? Það held ég allavega.
Góðan daginn
Í dag er föstudagurinn þrettándi, tími til að læsa sig inni og liggja uppi í rúmi!
Vef halning
Var að enda við að laga vefinn hjá mér, henda burt asnalegum hlekkjum og setja inn sniðuga í staðinn, ég mæli til dæmis með þessum hlekk í leiðindum. Svo er líka komnar inn nýjar myndir af Kötlu Maríu.
Er ég eitthvað mis?
Ég var að gera sjokkerandi uppgötvun! Ég veit nefnilega ekki hvað þetta heitir! Er ég svona samfélagsfatlaður eða veit enginn hvað þetta heitir? Mér vitrari einstaklingar sendi mér póst!
Ég var að semja málshátt
"Kapp er bezt í flýti" - hljómar vel ekki satt?
|