|
Ætli þetta sé satt?
Ég legg það nú ekki í vana minn að skanna Hagkaups bæklinginn, en þetta er auðvitað bara haugafyndið. Sennilega er þetta hluti af nýju markaðsátaki hjá flugleiðum?
Kók er megrandi
Já, þið sem þekkið mig vel vitið væntanlega hvað mér er illa við að vera með staðhæfingar nema að ég sé algerlega fullviss í minni sök. Þegar maður drekkur kók þá losnar allt gosið úr því og fyllir magann af koltvísýringi þannig að maður verður fyrr saddur. Það er svo ekki ein einasta kaloría í koltvísýringi svo að þetta er allt saman alveg gríðarlega megrandi! - og ekki skemma þetta fyrir mér!
Fara varlega
Það er einn vörubíll sem ég vil alls ekki að lendi í bílslysi.
Það er tankbíllinn frá Lýsi! Það skuggalegasta er að hann hefur greinilega lent nokkrum sinnum í einhverju hnjaski því tankurinn er allur beyglaður en bara búið að mála yfir það ... brjálæðingar.
|