|
Já, menn eru ekki alveg að hugsa hlutina til enda
Nýjasta framlag bandarískra stjórnvalda til að tryggja frið í heiminum, Guns in Space. Reyndar er það alveg rétt að gerfihnettir eru veikasti punktur bandaríska hersins en það að ætla að koma fyrir vopnum í geimnum er ekki rétta leiðin til að verja þá, í raun er það bara tímaspursmál hvenær það verður ómögulegt að halda gervihnöttum öruggum því þegar particle beams verða að veruleika þá verður alltaf hægt að ýta t.d. gps hnöttum úr réttri sporbraut og rugla allt draslið
Þetta er frekar súrt
Hvar höfum við séð þetta áður, og hvað höfðu Bandarísk stjórnvöld að segja um það þá?
Sjálfrennireiðarsamfasageislafónn
Ég gerðist svo frægur í dag að setja geislaspilara í bílinn minn og nálgast nú óðfluga að geta talist siðmenntaður einstaklingur, næst á dagskrá er að fá mér sjónvarp - í íbúðina mína.
Heimsmet?
Ætli að þetta hljóti ekki að vera heimsmet í steypu - miðað við höfðatölu að sjálfsögðu.
Kommentin komin í gagnið
Jæja, þá eru kommentin komin í gagnið (copy paste) magnað kerfi HaloScan.com er eiginlega frekar sniðugt bara.
Best að fara að taka þetta til kostanna!
blogspot og komment
Ég er bara að velta því fyrir mér afhverju það sé enginn blogspot banner hjá mér, þið vitið, þessi sem á að vera efstur á síðunni eins og á síðunni hans Steina eða Arnars Freys. Á hann eftir að koma eða hef ég einhvernveginn diseiblað hann??
Svo eru gleðifréttir, þar sem enginn skoðar þessa síðu þá er ég að hugsa um að setja upp kommenta system hérna... svo að... hmmm... jæja ég ætla allavega að setja svona kommenta system!!
Rise of the machines...
The Register með fréttir um að uppreisn raftækja sé hafin!
spurl.net
spurl.net er rakin snilld, alltaf þegar maður rekst á eitthvað sem manni líkar þá smellir maður einfaldlega á hnapp í toolbarinu. Maður getur svo farið á spurl.net og fengið lista yfir hvað maður hefur merkt við (online favorites anyone?), maður getur líka fengið lista yfir hvað er vinsælast og síðast en ekki síst lista yfir url frá fólki sem merkir við svipaða hluti og þú (mjög kúl)!
Maður getur svo syndicate-að allt draslið eins og ég er að gera hérna hægra megin. Það sem ég er að skoða eru þær síður sem ég hef merkt við með spurl. Þar fyrir neðan eru síður sem spurl mælir með fyrir mig, semsagt síður sem ég hef ekki merkt við, heldur fólk sem merkir við svipaðar síður og ég.
(Þetta byrjaði sem I Like en það var ekki mjög googlanlegt.)
Endurlífgun í gangi...
"Clear!" BZZZzzzzZZZt........
"Live, damn you, LIVE!"
|