|
Revenge of the Nerds!
Nú er allt að verða vitlaust í netheiminum eina ferðina enn. Löggan búin að bösta 12 nörda og gera tölvurnar upptækar fyrir að vera að shera bíómyndum og tónlist. Nördar eru að hópa sig saman og efna til byltingar, sniðganga Skífuna og allt henni tengt og eru líka argir út í þjónustuaðilana sína.
Jaaaá nú skil ég
Þessi frétt er svolítið merkileg;BBC NEWS | Health | Dogs 'sniff out' bladder cancer. Nú vitum við loksins hvað hundar eru í raun að gera þegar þeir eru að þefa af klofinu á fólki. Þeir eru að sinna einhverjum æðri tilgangi við að greina krabbamein, besti vinur mannsins strikes again.
Tékkland, Tékkland über alles
Fyndið... Google virðist bara vilja auglýsa í Tékklandi - ekki á Íslandi. Baggalutur.tk er semsagt með auglýsingum en ekki blogspot síðan mín... silly.
Fyrst ég er byrjaður að röfla, eruð þið búin að prófa google leitina hérna til hliðar, hún er ekki your every day Google leit. Verst að það kemur alltaf eitthvað gúmmí feti$h drasl í auglýsingarnar þrgar maður leitar að 'gummih' (vissara að hafa feti$h með '$' svo að gúglið haldi ekki að síðan mín sé einhver svoleiðis síða... )
It's alive!
OZ Communications búið að næla í tvo milljarða takk fyrir. Það er ekki að spyrja að honum Skúla.
Þvottavél með nettengingu
Mmmmmm, nettengd þvottavél! Ef þetta fær ekki nördahormónin til að flæða þá veit ég ekki hvað. Tími ljósblárauðgrárra fata er liðinn á enda. Lengi lifi the Smart Tag Reading Washing Machine ... hversu pathetic er það að fá engin sms - nema frá þvottavélinni sinni!
Google virðist ekki kunna íslensku??
Þetta Google auglýsinga stöff er ekki alveg að fúnkera hérna. Það finnur engar relevant auglýsingar (þessvegna er bara tilvísun í lokaverkefnið mitt) og það þýðir að ég mun ekki fá þá sturluðu innkomu sem ég ætti að fá þegar fastagestahjörðin mín flykkist í að skoða auglýsingar. Fuss og svei, maybe I should write some stuff in english? Ummm, cool stuff, eeee, movies, computers, coffee, hot cars.... pheeee, þetta ætti að duga.
Hver vill koma í bátaleik?
Næst þegar ég fer út í búð að kaupa mér bát, þá ætla ég að kaupa mér svona bát. Verst að hann er bara rétt tæp 17.000 hestöfl en það hlýtur að vera hægt að kaupa mod-chip í hann eða eitthvað.
Real Alternative v1.23
Hver elskar ekki Real og þeirra þægilega viðmót við þrælan.. ehemm, viðskiptavini sína? Ef þú ert eins og ég þá hefur þú væntanlega neitað að setja upp Realplayer á tölvum hjá þér síðan árið 2000 þegar innsetningarforritið fyrir RealPlayer lét þig ganga í gegnum 30mín skráningarferli - bara til þess að installa 4 mismunandi frostgjörn forrit á tölvuna sem reyna þar að ná öllum völdum og hindra önnur forrit í að fá vinnsluminni og örgjörvatíma. Gallinn við þessa réttlátu þvermóðsku hefur auðvitað verið sú að maður hefur ekki getað horft eða hlustað á RealMedia skrár síðan Clinton var forseti. Sem betur fer virðist RealMedia vera að hverfa af yfirborði jarðar en ef þig langar í forrit til að horfa á RealMedia skrár án þess að láta Real frústrera þig til andskotans þá er kannski þess virði að tékka á þessu littla forriti: Real Alternative v1.23
.Com æðið hér kem ég!
Eins og glöggir fastagestir eru væntanlega að átta sig á í hrönnum þá er ég búinn að gjörbylta vefviðmótinu á síðunni. (Ég fékk hugmyndina á mbl.is) Hægra megin munu vera auglýsingar sem ég mun græða á tá og fingri af í hvert sinn sem lesendahópurinn minn mun smella á auglýsingu. Ég mun loksins verða ríkur, ríkur segi ég RÍKUR!! Bwahahahaaa.
Dóna banner
Ég veit ekki alveg hvort ég er sáttur við þennan banner hérna fyrir ofan. Hann er svosem ekkert of stór eða uppáþrengjandi en mér finnst hann bara hálf dónalegur.
Til dæmis finnst mér óþarfi að segja "Get your own blog", við gesti sem eru að skoða bloggið mitt, eins og þeir megi ekki skoða bloggið mitt og eigi bara að búa sér til sitt eigið. Og ekki nóg með það heldur líður mér alltaf eins og að þessi banner sé að gefa mér fingurinn þegar ég les upphrópunina "Blog This!" - eða er ég bara með ofsóknarbrjálæði?
Etch a Sketch 2.0
Hver man ekki eftir Etch a Sketch og fögrum myndum af tröppum, völundarhúsum og illa teiknuðum hringum. Núna er komin ný útgáfa "Etch a Sketch 2.0", stórlega endurbætt. Nýja útgáfan er með stærri skjá (17" eða 20") rauða litnum hefur verið skipt út fyrir stílhreinni hvítan lit, búið er að setja fót á gripinn og hnapparnir hafa verið fjarlægðir þannig að maður þarf ekki lengur að bisa við að teikna mis góðar myndir á þetta dót.
|