|
|
Leitarboxið í Firefox og nýjar leitarvélar
Leitarboxið í Firefox gerir þér kleyft að leita á google eða öðrum leitarvélum. Það er sáraeinfalt að bæta við fleiri leitarvélum, maður smellir bara á leitarvéla iconið og velur 'add engines' neðst á listanum. Ég mæli sérstaklega með imdb, wikipedia og Webster. Það er hinsvegar ekkert augljóst hvernig á að fjarlægja leitarvélar úr listanum. Mér finnst best að fara bara í möppuna C: \Program Files \Mozilla Firefox \searchplugins en þar eru leitarvélatilvísanirnar geymdar. Það eru 2 skrár fyrir hverja vél, ein .src skrá og ein mynd (.gif eða .png). Eftir að hafa eitt viðkomandi skrám restartar maður Rebba og vélin er horfin úr listanum. Annað atriði með leitarboxið er að mér finnst það vera frekar lítið. Til að hafa það stærra þurfa eftirfarandi línur að vera í userChrome.css skránni (sjá nánar um userChrome.css):
#search-container, #searchbar { -moz-box-flex: 400 !important; } næst: Firefox á sterum
Vefurinn án auglýsinga
Ef þú ert eins og ég þá þolir þú ekki auglýsingar. Opnaðu snöggvast mbl.is og skoðaðu auglýsinga blikk flóðið sem er þar og skoðaðu svo þessa mynd af mbl.is úr Firefox uppsetningunni minni. (hérna er IE "uppsetningin" mín) Þetta er argasta snilld, vefir verða læsilegri, blikkandi herbalife og húsnæðislána auglýsingar hætta að bögga mann, það kemst meira efni fyrir á skjánum því að auglýsingarnar eru ekki bara blokkaðar heldur er plássinu þeirra úthlutað annað og að lokum verða margar síður töluvert hraðvirkari! Fylgdu bara þessum sex skrefum og þú verður hamingjusamara nörd eftir 10 min.
- Settu upp AdBlock viðbótina (og endurræstu Eldrebba)
- vistaðu þessa adblock-filters textaskrá á aðgengilegum stað
- veldu {tools -> adblock -> preferences}
- veldu {Adblock options -> import filters}
- veldu þar adblock-filters.txt sem þú vistaðir í skrefi 2
- opnaðu mbl.is
Núna er Firefox hjá þér hættur að birta sirka 90% allra auglýsinga á netinu! Svo geturðu blokkerað restina með smá vinnu. Til að blokka auglýsingar á vefjum þarf bara að framkvæma 3 skref - tekur oftast um 10 sek.
- veldu {Tools->AdBlock->List all blockable elements}
- veldu slóðina í möppuna sem geymir auglýsingarnar og settu * aftast
- ýttu á ok
Blokkunin er mjög öflug og bíður upp á mjög öfluga regular expressions notkun og líka almenna wildcard ( * ) notkun , dæmi: http://ia.imdb.com/media/*.swf* (þessi blokkerar bara flash skrár á þessari slóð á imdb.com) Það er eitt smá pirrandi við þessa viðbót en það er að það vill setja flipa við allt sem það getur blokkað - sumum finnst þetta kannski þægilegt en ég vil ekki sjá þetta. Til að fjarlægja fer maður í {Tools -> AdBlock -> Prefrences} velur 'AdBlock Options' og tekur hakið af 'Obj-tabs'. Það er svo hægt að exporta slóðunum sem maður blokkar til að installa í aðrar tölvur sem maður notar og til að deila með vinum og kunningjum. Þegar maður exportar er bara búin til einföl textaskrá með listanum með öllum slóðunum sem AdBlock blokkerar og einmitt þannig bjó ég til adblock-filters skránna sem var notuð hér. næst: Leitarboxið í Firefox og nýjar leitarvélar
|
|