|
|
Stjörnukíkir
Núna er kominn tími á smá græjublogg hjá mér. Ég get að öllum líkindum flokkast sem náungi með tækjafetish á alvarlegu stigi og græjan sem ég er veikastur fyrir þessa dagana er stjörnusjónauki. Ég hef verið geim nöttari frá því ég man eftir mér en einhverra hluta vegna hef ég aldrei fjárfest í stjörnukíki. Ég hef núna aðeins verið að skoða þessar græjur og mér líst held ég best á þetta apparat hér, Meade SN-10. Þessi er gríðarlega ljósnæmur (25cm víður spegill), hann er með snúningsmótor og tölvustýringu - sem er auðvitað über svalt. Þetta þýðir það að þegar ég stilli honum upp þá þarf ég bara að hafa hann láréttann og vísa honum í norður. Tölvan sér svo um að stilla hann rétt, hún bendir honum sirka á sitthvora stjörnuna og segir mér að stilla kíkinn þannig að þær séu akkúrat í miðju kíkisins. Þegar maður er búinn að þessu fer maður í valmyndina á tölvustýringunni, velur hvað maður vill skoða og kíkirinn finnur það sjálfkrafa. Þetta gæti t.d. verið Satúrnus, Plútó (já hann sést með þessum) eða jafnvel vetrarbrautir, halastjörnur eða sprengistjörnur. Í tölvunni er listi yfir 30.000 mismunandi hluti á himninum. Algjör snilld. Jörðin snýst svo auðvitað ansi hratt þegar maður er að skoða eitthvað gegnum öflugan kíki og rafmótorinn á honum sér um að það hafi ekki áhrif, hlutir haldast í miðju kíkisins. Einn af fítusunum við þennan flotta kíki er að það er tiltölulega auðvelt að tengja digital myndavél eins og Canon 300D við hann og taka myndir á löngum tíma. Þannig getur maður náð mjög flottum myndum. Þessi gaur hér tekur myndirnar sýnar með nákvæmlega svona kíki - hann er samt með mun þróaðari, peltier kælda, myndavél sem er sérhönnuð fyrir stjörnuljósmyndun en þetta gefur ágæta mynd af því hvað svona sjónauki getur. Ég mæli sérstaklega með því að skoða myndirnar hans af stjörnuþokum og sprengistjörnum , en það er líka mikilvægt að muna að svona myndir snúast mikið um að kunna að vinna rétt úr upprunalegu myndunum sem teknar eru. Hérna er svo náungi sem notar Canon 300D myndavél og mjög svipaðan en örlítið eldri sjónauka frá sama framleiðanda. Frábærar myndir hjá honum líka. Ó, og á meðan ég man - ég HATA internet um breiðband, tengingin datt út þrisvar sinnum meðan ég var að skrifa þetta blogg. Bráðum kemur blogg um valmöguleika á nýjum nettengingum.
Viltu frí wink fyrir Messenger 7
Ein af nýjungunum í msn 7 eru winks, gallinn er bara að maður hefur ekki getað fengið ný wink neins staðar, allavega ekki án þess að vera með kreditkort. Hérna eru samt nokkur ókeypis sem fólk gæti haft áhuga á. Heilaprump, Skál!, Flugeldar og Spennitreyja.
Sjöundi Sendiboðinn
Msn Messenger 7.0 er kominn út. Þá er víst illt í efni samkvæmt Biblíunni, en hvað um það, þetta var gaman meðan þetta entist...
"And the seventh messenger did sound, and there came great voices in the heaven, saying, `The kingdoms of the world did become [those] of our Lord and of His Christ, and he shall reign to the ages of the ages!' and the twenty and four elders, who before God are sitting upon their thrones, did fall upon their faces, and did bow before God, saying, `We give thanks to Thee, O Lord God, the Almighty, who art, and who wast, and who art coming, because Thou hast taken Thy great power and didst reign; and the nations were angry, and Thine anger did come, and the time of the dead, to be judged, and to give the reward to Thy servants, to the prophets, and to the saints, and to those fearing Thy name, to the small and to the great, and to destroy those who are destroying the land.' And opened was the sanctuary of God in the heaven, and there was seen the ark of His covenant in His sanctuary, and there did come lightnings, and voices, and thunders, and an earthquake, and great hail." - Revelation 11
"Þjónustuver" Símans
Djöfull sem ég er búinn að fá mig full saddann af þessu svokallaða þjónustuveri símans. Þvílíkt rangnefni, það ætti frekar að kalla þetta þjónustuSKVER símans því maður er gjörsamlega skveraður um nokkurn einasta snefil af þjónustu með þessu drasli. Ég er sjálfur frekar illa settur með nettenginguna mína, ég er nefnilega tengdur við netið í gegnum breiðbandið og það er þjónusta sem síminn ákvað að sturta niður klósettið og hætta að bjóða uppá hana fyrir nýja áskrifendur. Þeir sem voru áskrifendur fyrir, eins og ég, eru hinsvegar látnir danka inni í kerfinu á meðan því fer stöðugt hrakandi. Þessa viku hefur tengingin verið til stöðugra vandræða, fjögur kvöld höfum við nánast ekkert komist á netið. Á föstudaginn var engin tenging og ég reyndi í flónsku minni að hringja í 800 7000 til að fá aðstoð, mér var tjáð að ég væri nr. 12 í röðinni, 45 min seinna var ég enn að bíða í símanum, þá orðinn nr. 3 í röðinni - á 45 mínútum hafði þetta ógurlega þjónustuver semsagt dílað við 9 kúnna! Það gerir einn kúnna á 5 mínútna fresti og það skal enginn segja mér að enginn þessara 9 hafi ekki gefist upp á að bíða, eins og ég gerði þarna þegar ég var orðinn 3. í röðinni og nettengingin hafði lagast af sjálfu sér á meðan ég beið. Það er svo auðvitað ekkert vesalings fólkið sem svarar í símann sem ég er að ergjast út í, það eru stjórnendur þjónustuversins sem annað hvort eru óhæfir í starfi og vita ekki hvert ástandið er eða þá að þeim er hreinlega skítsama um hvaða þjónustu viðskiptavinir fyrirtækisins eru að fá.
Gmail: 2GB!
Gmail er búið að stækka í 2GB, ef þig langar í gmail, sendu mér þá póst. Fyrir þá sem eru ekki kunnugir Gmail þá er þetta besta lausnin ef þú ert að nota 2MB hotmail póst og ert að ganga af vitinu. Með gmail getur maður t.d. sent 10MB viðhengi, það er hraðvirkt og mjög góður spam filter í því, núna er komin pop stuðningur og fyrir Firefox notendur er til Gmail notifier extension.
Picasa
Þeir sem eru fullkomnlega ánægðir með þann hugbúnað sem þeir nota til að skipuleggja og vinna með myndirnar sínar hafa líklega engan áhuga á þessu bloggi. Ég er ekki vanur að gera mér far um að mæla sérstaklega með einhverjum ákveðnum hugbúnaði. (Fyrir utan Firefox auðvitað, náðu þér í Firefox) En nýlega rakst ég á algert drauma apparat. Ég er búinn að vera í hálfgerðu limbói undanfarið með digital myndirnar mínar, eftir að hafa hent út satanískum hugbúnaði frá kodak hef ég verið að leita að nýju forriti.
Ég er þannig að ég vil flytja myndir af myndavélinni inn í dagsetta möppu og síðan aldrei hreyfa við þeim meira, ef ég breyti mynd þá tek ég afrit af orginalnum og breyti honum. Þetta varð samt til þess að ég lagaði ósköp fáar myndir og það var t.d. voðalegt maus að finna allar skemmtilegustu myndirnar af dóttur minni til að sýna afa hennar og ömmu eða finna allar ferðalaga myndirnar okkar á fljótlegan hátt. Ég var áður að nota Kodak easyshare og í því var þægileg leið til að merkja myndir með stikkorðum, í þetta hafði ég eytt töluverðum tíma (merkti um 2000 myndir og sumar með mörgum stykkorðum) en fyrir vikið var auðvelt að finna myndir í því. Síðan bauð þetta hugbúnaðarskrípi úr neðra mér uppfærslu, ég samþykkti auðvitað því þetta var svolítið böggað (fraus t.d. ef maður var að importa myndir á miðnætti). Þegar ég ræsti draslið aftur komst ég að því að það var komið annað viðmót og gettu hvað, engin stikkorð á myndunum lengur, þau höfðu einfaldlega verið hreinsuð úr kerfinu! En æðisleg uppfærsla hugsaði ég sótrauður af reiði meðan ég eyddi forritinu af tölvunni og skrifaði Kodak miður huggulegt bréf.
En hvað um það, þetta blogg átti ekki að vera um sataískan hugbúnað sem ekki nokkur maður ætti að láta sér detta í hug að nota heldur er þetta blogg um draumkennda vöru sem mun færa okkur frið á jörð, nefnilega Picasa. Jæja, áður en ég vek svo miklar væntingar að gjörsamlega enginn á minnsta möguleika á að verða ekki svekktur við notkun þá er líklega réttast að taka fram að þetta er ekkert ofur forrit svosem, ekkert í líkingu Photoshop ef þú ert að pæla í myndvinnslu, en það er einfalt og hraðvirkt. Þetta er myndavafri sem er mjög hentugur til að halda utan um allar myndirnar þínar, merkja þær með stikkorðum og framkvæma einfaldar lagfæringar. Ég hef skoðað nokkur mismunandi forrit (m.a. photoshop album 2.0 og Ashampo Illuminator) en mér fannst ekkert þeirra vera nógu gott svo ég var enn bara að nota explorer til að skoða myndirnar mínar. Þá rakst ég á Picasa (sem er btw. frá Google og er algerlega ókeypis). Forritið byrjar á að skanna tölvuna þína í leit að myndum (fann slatta sem ég var búinn að gleyma/týna) og þú stillir svo hvaða möppum það á að fylgjast með í framtíðinni. Forritið setur svo möppurnar upp í tímaröð og birtir thumbnails af öllum myndunum svo maður getur skrollað í gegnum allt safnið án þess að vera alltaf að velja hverja möppu fyrir sig (skjámynd). Þetta hljómar frekar illa því maður gerir ráð fyrir að svona sé hörmulega slow, en það er nefnilega einmitt málið, þetta er reglulega hraðvirkt og skemmtilegt forrit, mun hraðvirkara en Photoshop Album t.d. Forritið býður upp á stikkorð og svo er einnig hægt að stjörnumerkja myndir, svo er hægt að velja á fljótlegan hátt allar myndir með ákveðnu stikkorði og einnig að stilla forritið þannig að það birti aðeins stjörnumerktu myndirnar. (Ég tek alltaf svona 10 myndir af hverju myndefni svo að mér finnst mjög gott að hafa stjörnumerkinguna til að merkja þær myndir sem mér finnast skemmtilegastar) Það er hægt að gera einfaldar lagfæringar á myndum eins og að rétta þær af, laga lýsingu, skerpu, rauð augu og fl. (skjámynd). Það snilldarlega er svo að Picasa breytir ekki orginal myndinni, hún er alltaf ósködduð. Þetta hefur orðið til þess að í hvert skipti sem ég set nýjar myndir inn á tölvuna núna þá renni ég yfir þær í fljótheitum og laga nánast hverja einustu mynd, myndasafnið verður mun skemmtilegra fyrir vikið. Maður getur merkt myndir með texta, textinn er merktur "í" myndina svo að þú getur séð hann jafnvel þó þú opnir hana í öðrum forritum. Segjum að þú viljir senda nokkrar myndir í pósti þá velurðu þær bara og smellir á "email", myndirnar eru sjálfkrafa minnkaðar í fyrirfram ákveðna stærð (stillanlegt) og hægt er að senda með gmail og flestum öðrum póstforritum. Það er ágætur útprentunarfídus og ef þú vilt senda myndir á bloggið þitt þá er þetta algjört möst, maður velur bara myndina og smellir á "Blogger", þá opnast Hello (líka frítt frá Google) þar sem þú skrifar inn texta fyrir myndina (ef þú varst búinn að merkja myndina í Picasa þá birtist sá texti default) og svo sendir Hello myndina á bloggið þitt (sjá myndabloggið mitt). Annar svalur fídus í þessu er að forritið getur tekið heila möppu og búið til html síðu fyrir hana, síðan er vistuð (með myndum og thumbnails í réttri stærð) í sérstakri export möppu og þaðan getur maður ftp-að síðunni á heimasvæðið sitt (þetta hef ég reyndar ekki gert ennþá en mér sýnist þetta vera mjög sniðugt). Svo eru auðvitað fleiri fídusar í þessu en ég held að ég segi þetta gott í bili.
Ef þig langar að prófa þetta forrit, og ég mæli með því að þú gerir það, þá geturðu náð í það á picasa.com eða frá Google og það er alveg frítt, full version, það er ekkert registration, enginn pirrandi spam listi sem maður lendir á og ekkert spyware eða áklíndur hugbúnaður. Bara púra draumur.
UPDATE 4.nóv.2005: Núna þarf maður ekki lengur að nota Hello til að pósta myndum á bloggið sitt heldur sér picasa um það alla leið. Ég hef líka prófað vefsíðufítusinn og hann virkar fínt, ekkert fancy síður en hafa thumbs og þjóna sínum tilgangi. Nýjasta útgáfan hefur svo betri meðhöndlun á íslenskum stöfum sem voru að valda vandræðum í eldri útgáfum.
|
|