gummih

Twitter Updates

heyrðu mig á twitter

gummih@gmail.com

Reynslubrunnur Hugbúnaðarfyrirtækja

það sem ég er að skrifa
Framtíðarsýn Þjóðar
Endalaus tónlist af Blip.fm
Þráðlaust net í Linux
Maður hefði kannski átt að sjá þetta fyrir?
Takk, riddari götunnar!
Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja
Nýsköpun.org
Jæja - og hvað svo?
Forgangsröðina í lag - sólarvörn !!
Eldur og olía

Skrif á Hugmyndaráðuneytinu

úr gagnvarpinu
Nýsköpun.org
Ljósmyndakeppni
Baggalútur
Gizmodo
ML-inga grúppa
Arnar Freyr
Einar
Emma og Bjarki
Eyrún og Jobbi
Gunnare
Gommit
Gummi Halldórs
Halla
Hjalli
Hrund frænka
Íris Engill
Lína og Alex
Óskar Páll
Sigurjón Aðalönd
Sindri
Þarfagreinir

gamla draslið

  • apríl 2002  
  • maí 2002  
  • júní 2002  
  • júlí 2002  
  • ágúst 2002  
  • september 2002  
  • október 2002  
  • nóvember 2002  
  • ágúst 2003  
  • febrúar 2004  
  • mars 2004  
  • apríl 2004  
  • maí 2004  
  • júní 2004  
  • júlí 2004  
  • ágúst 2004  
  • september 2004  
  • október 2004  
  • nóvember 2004  
  • janúar 2005  
  • febrúar 2005  
  • mars 2005  
  • apríl 2005  
  • maí 2005  
  • júní 2005  
  • júlí 2005  
  • ágúst 2005  
  • september 2005  
  • nóvember 2005  
  • desember 2005  
  • janúar 2006  
  • febrúar 2006  
  • mars 2006  
  • apríl 2006  
  • maí 2006  
  • júní 2006  
  • júlí 2006  
  • ágúst 2006  
  • september 2006  
  • október 2006  
  • nóvember 2006  
  • desember 2006  
  • janúar 2007  
  • febrúar 2007  
  • mars 2007  
  • maí 2007  
  • júní 2007  
  • ágúst 2007  
  • október 2007  
  • desember 2007  
  • janúar 2008  
  • febrúar 2008  
  • júní 2008  
  • júlí 2008  
  • október 2008  
  • nóvember 2008  
  • janúar 2009  
  • mars 2009  
  • apríl 2009  
  • 29.6.05
    Tengdu MSN messenger við gemsann

    Núna er ég búinn að tengja MSN messenger við gemsann hjá mér og þetta virkar. Þegar ég er ekki á MSN þá fæ ég statusinn Mobile (gulur kall) og ef einhver sendir mér þá skilaboð þá berast þau sem SMS í gemsann minn.
    Til að gera þetta virkt þarf að ganga í gegnum tvö ferli, fyrst að virkja SMS netfangið þitt ([simanumer]@sms.is) og svo þarftu að tengja MSN inn á SMS netfangið.
    Ef þú ert hjá voðafón þá notarðu þessar stillingar til að virkja SMS netfangið þitt og ég geri ráð fyrir að þetta sé hægt á sambærilegan hátt hjá símanum.
    Þegar þetta er búið þá er bara eftir að tengja messengerinn við [símanúmer]@sms.is. Það eru leiðbeiningar til þess þarna í Voðafóns stillingunum en þær eru aðeins out of date. Ég ætla þessvegna að nappa fínu skjámyndinni þeirra og útskýra aðeins betur.

    1. Opnaðu MSN mobile síðuna (gæti krafist þess að þú loggir þig inn á passport)
    2. Veldu "Other" sem Wireless service provider
    3. Merktu í "My device has text messaging" tékkboxið
    4. Sláðu inn [símanúmerið þitt]@sms.is í reitinn fyrir neðan.

    Og þar með er þetta komið, bara eftir að hneppa á "Next" og samþykkja einhverja skilmála - MSN rukkar ekkert fyrir þessa þjónustu en það er ágætt að hafa það hugfast að ég held að maður borgi 7kr fyrir hvert sms sem berst manni í gegnum svona @sms.is netfang.

    23.6.05
    Rússar skjóta langdrægri flaug á sporbraut, BNA vita ekki hvar hún er

    Svo ef ég skil þetta rétt, þá geta rússar skotið á loft langdrægri flaug sem var hönnuð til að bera kjarnavopn án þess að Bandaríkjamenn hafi glóru um hvar hún er stödd. Rússar hefðu semsagt getað sleppt því að skjóta þessu blessaða sólarseglskipi og skotið í staðinn langdrægu kjarnavopni á sporbraut? Síðan þegar þeir vildu gætu þeir sent boð til þess að skutla því inn úr sporbraut og gert kjarnorkuárás án þess að Bandaríkin hefðu af því nokkra einustu viðvörun (Bless bless Washington). Eins gott að kalda stríðið er búið, þetta hefði sent allt til fjandans.


    Djöfull er maður vinsæll maður

    Statbrain.com segir að ég fái 1,3 milljónir gesta á dag! Reyndar er actual fjöldinn í raun nær því að vera 1,3 gestir á dag en hver vill vera með smámunasemi...

    20.6.05
    Api hakkar í sig rúðuþurrku

    Ef ég væri þeir þá hefði ég nú minni áhyggjur af apanum og meiri áhyggjur af því að mér heyrist vera hýena í bílnum hjá þeim...

    19.6.05
    Tengdu sjónvarpið við þráðlausa netið


    Ef ég ætti sjónvarp þá væri ég gríðarlega heitur fyrir þessari Philips Streamium SL400i græju.
    Fyrir þá sem eru með þráðlaust net heima hjá sér en hafa ekki ennþá tengt tölvuna við sjónvarpið þá er þetta algjört monster apparat. Þú húkkar þessu bara við sjónvarpið og þetta spilar tónlist, bíómyndir og ljósmyndasafnið beint af hvaða tölvu sem er sem er tengd við þráðlausa netið.
    Hún styður m.a. jpg, mp3, MPG2, MPG4, DivX 5, XviD.
    En þetta er ekki allt því græjan tengist líka netinu (port 80) og getur streymt efni af því, aðgangur af glás af netvörpum, bíótreilerar, netleikir og fleira sem maður getur nálgast þar. (Held maður geti samt ekki vafrað) Svo eru líka einhverjir einfaldir leikir eins og Tetris innbyggðir í þetta líka. Græjan uppfærir sig svo sjálfkrafa.
    Til að skoða þetta betur þá er hérna demó sem sýnir hvernig þetta virkar. (Demóið sýnir reyndar minni græjuna, SL300i en þetta virkar eins)
    Svona græja ætti að vera komin í hendurnar á manni fyrir ~38þús gegnum Amazon og ShopUSA. Ef menn eru óþolinmóðir geta menn líka verslað þetta af Heimilistækjum

    6.6.05
    Firefox - hraðari ræsing!

    Nokkrir hafa nefnt við mig að þeim finnist Firefox lengi að ræsast (og virtist ekki hafa skánað við að setja kvikindið á stera). En það er til ráð til að laga það í XP.
    Maður þarf bara hægri smella á iconið sem maður notar til að ræsa Firefox, undir Shortcut flipanum þar er textabox sem heitir Target, bættu við /Prefetch:1 aftast í línuna.
    Þegar þetta er búið þá ætti textinn í Target textaboxinu að vera svipaður þessu:
    "C:\Program Files\Mozilla Firefox\firefox.exe" /Prefetch:1
    Þetta gerir það að verkum að Windows XP notar snjalla prefetch fítusinn sinn til að ræsa Firefox örlítið hraðar (takk Bill).


    Mugison

    Þar sem ég hlusta aldrei á útvarp og horfi ekki á sjónvarp þá er ég alltaf ágætlega úr sambandi við hvað er að gerast í tónlist. Ég var þessvegna bara að fatta Mugison í dag. Snilld!
    Ef þú fílar Radiohead, Portishead, Múm, Jeff Buckley og íslenskt framtak. Farðu þá í 12 Tóna og verslaðu þér allt sem þú sérð með Mugison.

    3.6.05
    Hápunktur siðmenningarinnar - Kaffivél með nettengingu

    Ok, hver vill fá Kaffivél með nettengingu?
    Tölvufyrirtæki gætu komist upp með að lækka laun starfsmanna um 20-30% ef þeir myndu kaupa svona kaffivél í staðinn!
    Hérna má lesa nánar um hvað felst í nettengingunni.
    Svo kostar hún bara 124 þúsund! Gjafverð fyrir geimaldarkaffiróbot.

    1.6.05
    Busi reynir að þykjast gáfaðari en hann er

    Hljómar eins og það ætti að vera auðvelt - en hann hefði betur haldið sér saman.
    Núna á mánudaginn var orð dagsins á dictionary.com dissemble.
    dissemble:
    1. To hide under a false appearance; to hide the truth or true nature of.
    2. To put on the appearance of; to feign.

    Þetta virðist afglapinn hafa lesið því í gær rembdist fíflið við að láta ljós sitt skína þegar hann var að reyna að rakka niður skýrslu Amnesty. En auðvitað gerði hann bara á sig í rembingnum.
    It seemed like to me they based some of their decisions on the word of -- and the allegations -- by people who were held in detention, people who hate America, people that had been trained in some instances to disassemble -- that means not tell the truth.

    Skarpur að vanda hann Busi, það er nú ekki eins og að disassemble sé eitthvað óalgengt orð í ensku. Hugsið ykkur ef Ólafur Ragnar myndi segja. "...Fólk sem hafði verið þjálfað í sumum tilvikum til að taka í sundur - það þýðir sko að segja ósatt."
    Sjá boingboing

    Google

    Gagnvarpið
    gummih.com
    Nýjustu comment:

    facebook prófíllinn minn

    ThinkGeek

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting by HaloScan.com

    eXTReMe Tracker atom feed

    Add to iGoogle