|
Flickr rammi
Flickr er frekar svalt apparat og flestir sem kannast við það. Fyrir þá sem gera það ekki þá eru margir sem nota þetta til að vista myndir á netinu til að geta sett þær í bloggið sitt (en ég er hrifnari af hello). Margir nota þetta líka fyrir fjölskyldumyndirnar sínar en þá þarf maður eiginlega að kaupa áskrift (ókeypis að uploada 20MB á mánuði minnir mig). Ég er hinsvegar að prófa að nota þetta eins og nokkurskonar myndabookmarks, þ.e. þegar ég sé sniðuga mynd þá hendi ég henni í flickrinn minn og myndirnar birtast svo í nýja myndarammanum hér til hægri. Svolítið svipað og spurl.it nema fyrir myndir eiginlega - sjáum til hvort ég nenni að nota þetta af einhverju viti.
Ministry of silly traffic
Ég verð bara að vitna smá í hann Þarfagreini:
Hvað er eiginlega að þeim sem sjá um skipulagningu á umferðarmannvirkjaframkvæmdum hér í borg? Nánar til tekið: Af hverju hundskast þetta fólk ekki bara til að byggja mislæg gatnamót við mót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar? Nú er verið að grafa allt upp þarna í sirka 10. skipti og 'endurbæta' gatnamótin. Þessi apalegu stálgrindverk voru ömurlegt fyrirbæri, og gott að þau eru farin, en af hverju í sullaveikum amlóðum var þá verið að setja þau þarna niður á annað borð? Og hvað á þá annars eiginlega að taka við? Her af þjálfuðum simpönsum sem lyftir bílum og fólki hvert yfir annað? Valslöngvur sem skjóta fólki yfir gatnamótin? Ormagöng? Meira skrambans bullið. Þessu gæti ég ekki verið meira sammála! Það væri þó strax munur ef það væri ekki allt hálf stopp þarna á hverju einasta sumri vegna framkvæmda!
Google Firefox Extensions
Google gaf í gær út Google Extensions fyrir Firefox. Þarna er t.d. Google Toolbar, sem er reyndar ekki alveg eins mikilvægt fyrir Firefox og það var í IE því Firefox er auðvitað með searchboxið sitt snilldarlega en djöfull var samt gott að fá þetta. Þvílík hamingja: ljómuð leitarorð, autofill, blogthis, spellchecker og upp um folder takkinn! Þó að það hafi verið til hin og þessi extensions sem sáu um flest þessi atriði þá voru þau fæst eins góð og það er auðvitað miklu þægilegra að setja bara upp 1 extension sem gerir það sama og 6 önnur. Aðrir áhugaverðir hlutir sem hægt er að gera með Google-barnum eru að leita í gmailinu sínu, leita á desktopinu, fá hvert leitarorð sem "Find" hnapp og svo er líka takmarkað þýðingartól sem virkar þannig að ef maður heldur músinni yfir ensku orði á hvað vefsíðu sem er þá birtist þýðingin á orðinu á einhverju öðru tungumáli eins og t.d. ítölsku, spænsku eða frönsku. Á extensions síðunni er líka annað ágætlega áhugavert extension fyrir þá sem vilja ekki Google-barinn og það er Google Suggest, með því fær maður auto complete í searchboxið í Firefox - ekki flóknara en það, en getur verið þægilegt.
|