|
Uppsetning á Firefox 1.5
 Jájá, Firefox eina ferðina enn. Núna er útgáfa 1.5 loksins komin út. Það eru svosem engar svakalegar breytingar síðan í RC3 útgáfunni nema hvað þetta á að vera eitthvað stöðugara. (Leitarvélarnar duttu ekki út núna) Fyrir þá sem eru ennþá með útgáfu 1 þá er aðal bónusinn sjálfvirkar uppfærslur, hraðari back/forward og slatti af böggfixum. En í þessu tilefni ætla ég að setja hérna stuttar leiðbeiningar um hvernig er þægilegast að setja rebba upp og hvaða viðbætur mér finnast vera mikilvægastar til að gera hann sem skemmtilegastan.
Fyrst skaltu Ná í Firefox 1.5 og setja hann upp, ef þú hefur ekki sett hann upp áður þá mæli ég með því að lofa honum að flytja inn stillingarnar úr gamla vafranum þínum og setja svo upp algengustu plögginin (flash, quicktime, java etc.).
Hérna er svo listi yfir viðbætur sem eru algjört möst!
- Tabbrowser preferences, þá færðu öflugari tab möguleika í options, aðal málið er að stilla "browser links" og "external links" á "new tab".
- AdBlock til að fjarlægja auglýsingar af vefsíðum (nánar um adblock)
- Google toolbar m.a. ljómuð leitarorð, "Up" takkinn, search current site, autofill og fl.
- Fasterfox setur Firefox á stera án vesens, stilltu á TURBO.
- IE Tabs gerir mögulegt að opna IE í flipa inni í Eldrefnum og í "IE Tab options" er hægt að setja inn síður sem eiga alltaf að opnast í IE tab, þægilegt fyrir síður sem styðja ekki rebba.
Hérna eru svo nokkur atriði sem mér finnast þægileg.
- Bættu /Prefetch:1 aftan við kommandlínuna í shortcutinu sem þú notar til að ræsa rebba. (nánar)
- Bættu við leitarvélum eins og IMDB, Merriam-Webster, BitTorrent og wikipedia (nánar um leitarboxið)
- Sessionsaver man hvaða flipa þú hafðir opna síðast þegar þú varst í Firefox.
- LastTab man hvaða flipi var opinn síðast hjá þér þegar þú lokar flipum.
- Linkification gerir url að linkum þó að þau séu bara texti: http://gummih.blogspot.com
Muna svo að fikta í þessum viðbótum með því að fara í Tools -> Extensions.
Ljósmyllan mín
Þetta er ein skemmtilegasta græja sem ég hef komið lúkunum yfir. Þetta er nokkurskonar ljós-vindmylla. Maður lýsir einfaldlega skæru ljósi á þetta (vasaljós dugar) og þá fara spaðarnir að snúast. Nokkuð kúl ha? Flestir verða frekar agndofa þegar þeir sjá þetta fara í gang. Kúlan er að mestu lofttæmd og spaðarnir eru svo allir glansandi á annarri hliðinni en svartir á hinni hliðinni. Það þýðir að glansandi hliðin á spöðunum er alltaf sjáanleg vinstra megin í kúlunni og svarta hliðin sjáanleg hægra megin í kúlunni. Ljósið endurkastast svo af glanshliðinni svarta hliðin drekkur þær í sig og hitnar síðan fyrir vikið. Við það verður til agnarsmátt afl sem verður til þess að spaðarnir taka að snúast. Sé ljósið nógu sterkt geta spaðarnir snúist skratti hratt, nógu hratt til að maður sér ekki lengur einstaka spaða. Nú eru væntanlega einhverjir forvitnir um hvernig þetta agnarsmáa afl sé nákvæmlega til komið og því miður verð ég að segja að þetta myndi ekki virka ef það væri algjört vakúm í kúlunni. Wikipedia er með nákvæma skýringu á þessu.
Bara hálfvitar haga sér svona
Tekið af síðu SMÁÍS: Allar upplýsingar sem fram koma á vef SMÁÍS er eign SMÁÍS, nema annað sé sérstaklega tekið fram eða leiða megi af eðli máls. Óheimilt er að setja krækju (link) á vef SMÁÍS af annarri vefsíðu nema með skriflegu samþykki samtakanna. Skriflegt samþykki SMÁÍS þarf til að endurbirta, afrita eða dreifa upplýsingum sem fram koma á heimasíðu SMÁÍS Í öðrum fréttum er að throstur.net er fín síða
Scott Adams - (Dilbert)
Dilbert er snilld. Enda er hann skrifaður af miklum snillingi, Scott Adams. Hann hefur samt skrifað meira en Dilbert og þar á meðal er bók sem heitir God's Debris. Núna er svo Scott að gefa þessa bók á pdf (snillingur, eins og ég sagði). Hér eru nokkur orð frá Scott Adams um þessa bók.
This is not a Dilbert book. It contains no humor. I call it a 132-page thought experiment wrapped in a fictional story. ... The target audience for God?s Debris is people who enjoy having their brains spun around inside their skulls. Þú getur downloadað bókinni á þessarri síðu Ég á svo eftir að lesa hana en mér líst vel á hana - ég vildi bara láta alla vita af þessu strax áður en lagerinn hjá honum myndi tæmast...
Firefox 1.5 RC2
Jæja, hann er reyndar ekki alveg tilbúinn ennþá, þetta er bara release candidate 2 en ég er orðinn mjög sáttur við hann, öll helstu extensionin eru tilbúin fyrir nýju útgáfuna (google toolbar er nýkomið) og almennt er ég mjög ánægður með uppfærsluna. Ég hef t.d. alltaf orðið grænn af bræði þegar ég þarf að bíða eftir því að síðan renderist þegar ég fer í "back" á mozilla eða IE. "Ég var búinn að bíða eftir þessarri síðu! Ég á ekki að þurfa að gera það aftur." Með nýja Eldrefnum er þetta einfalda atriði loksins almennilega hraðvirkt, mér brá næstum því þegar ég var að prófa þetta fyrst. Svo er búið að laga update fítusinn í þessu og fleira skemmtilegt. Eini gallinn sem ég hef rekist á er að ég tapaði leitarvélunum sem ég hafði bætt við. Ég varð smá pirraður yfir því en við skulum sjá hvernig release útgáfan tekur á því. Þú getur náð í installið hérna (5MB) Uppfært: frá því að þetta var skrifað er komin ný útgáfa, Release Candidate 3, hlekkirnir vísa á hann. UppfærtUppfært: og núna er hann kominn í release
Gandhi
Ég horfði á Gandhi í fyrsta skipi í vikunni, mögnuð mynd um magnaðan mann. Hún fékk átta óskara á sínum tíma (1982) og þá erum við ekki að tala um eintóma dótaóskara heldur þessa feitu; besta mynd, besti leikstjóri, besta handrit, besta myndataka og besti aðalleikari t.d. Svo held ég að hún eigi ennþá heimsmetið í flestum statistum í einni töku (300.000 manns). Myndin er rúmir þrír tímar og ég mæli virkilega með henni.
T r i x !
Ég tölti áðan í krónuna og rakst þar á "morgunkorn" sem ég hef ekki séð í langan tíma. Ég veit ekki með ykkur en Trix var sórt atriði í minni æsku, Trix var svona nokkurskonar hinn heilagi kaleikur morgunmats, að fá Trix var eins og að fá jólin snemma. Skiljanlega höfðu foreldrar mínir vit á að ala mig ekki á þessu sykur fóðri og lögðu töluvert á sig til þess. Ég man eftir mér í KÁ með pakka af Trix í fanginu hlaupandi á eftir mömmu í von um að sannfæra hana (lesist: pína til með suði) um að kaupa þessa guðafæðu. En órættlæti heimsins var mikið og ég get líklega talið á fingrum mér, Trix pakkana sem voru keyptir í mínu uppeldi. Ég man þó eftir að gera við sjálfan mig þögult samkomulag um að þegar ég yrði stór þá skyldi ég ALLTAF hafa Trix í morgunmat (og alltaf ís í matinn en það er önnur saga). En svo þegar ég var að verða að manni gerði hið hróplega óréttlæti grimmilegt grín að mér. Trix hætti að fást í öllum verslunum og gerði stórkostleg áform mín um sjálfstæði við morgunverðarákvarðanir að engu. Ég mátti bara hundskast til að éta mitt serjós og súrmjólk eins og annað fólk. Verandi skapstór og þrjóskur maður hef ég hingað til bara sleppt því að fá mér morgunmat. Ef ég fengi ekki þann þann besta, þá þann versta. En nú verður auðvitað breyting á, nú mun ég háma í mig Trix á morgnana eins og spilltur krakki og mæta með útvíkkuð sjáöldur af sykurvímu í vinnuna. Því á morgun fer ég í Krónuna og kaupi heilt bretti af þessu drasli.
Firefox vs. IE
Í tilefni þess að yfir helmingur gesta sem heimsækja bloggið mitt nota Firefox þá hef ég ákveðið að nú sé tíminn til að hefja grimmar og miskunnlausar aðgerðir til að pína explorer notendur smá. (Já ég veit, þetta er evil, ég er bara eitthvað sérstaklega illkvittinn í dag.) Internet explorer notendur vita nú þegar hvað ég er að tala um, þið hin getið komist að því hvað er svona evil með því að opna síðuna í IE. Fyrir þá sem ákveða að nú sé tíminn til að tékka á Firefox þá bendi ég þeim á að googla bara "Firefox" hérna í google glugganum til hægri og hafa gummih valið. Þá fáið þið helstu bloggin mín um tips fyrir uppsetningu á Rebba. Uppfært: Hérna eru leiðbeiningar til að setja upp Firefox 1.5
Ókeypis Visual Studio í eitt ár
Langar þig að leika þér? Tékkaðu þá á nýja ókeypis dótinu frá Microsoft. Þarna geturðu fengið Visual Studio (frítt í ár) og SQL Server Express (frítt!). Visual Studio Express kemur í nokkrum bragðtegundum, þar á meðal Visual Web Developer. SQL server Express er svo mun betri díll heldur en gamli MSDE, t.d. getur maður fengið alvöru umsjónartól með Express(sér dl). Ég hef svosem ekki tékkað á þessum útgáfum sjálfur og hverjar takmarkanirnar eru (því ég fékk standard útgáfurnar frítt, Bill alltaf að reyna að hafa mig góðan) en mér sýnist þetta vera alvarlega nothæft. Þetta fúnkerar ekki vel yfir Lan reyndar, þú verður að nota local grunn og það eru ekki dreyfingartól innifalin en það er hægt að skoða þetta nánar hér. Gleðilega forritun.
Aðeins um Fasisma
Ég hef bent nokkrum á þessa áhugaverðu síðu um 14 atriði sem einkenna fasisma. Fróðleg lesning ef þú hefur áhuga. http://www.rense.com/general37/char.htm
|