|
Fluttur
Eitt nördastig í vasann. Í gær fékk ég mér loksins domain. Reyndar bara hjá krappí vefhóst (enginn rekkaserver mallandi í stofunni ennþá) en þetta er þó viss nördastatus. Domainið er svo ( ... wait for it ... ) gummih.com - hvern hefði grunað það? Ég mun svo vera að dunda mér við að flytja þangað á næstunni og segja ykkur kannski hvernig þið getið fengið domain og vefhóst í eitt ár fyrir 650 kall. Endilega sjékkið á því.
Fréttamaður DV er nauðgari!
Einhver sagði að fréttamaður á DV væri nauðgari. Hann væri alltaf að nauðga einhverjum lélegum brandara. "Hættu að segja þennan lélega brandara, fólki er ekkert skítsama um muninn á réttu og röngu" var haft eftir heimildarmanni mínum í gegnum hlerað samtal. - - -
Myndi einhver kalla þetta fréttamennsku? Fæ ég núna atvinnutilboð frá DV? Þetta síðasta DV mál (DV = Daunillur Viðbjóður) er það sem virðist ætla að vekja fólk til smá umhugsunar. D.V. hefur það fyrir reglu að skrifa eins mögulega mikinn skít um fólk án þess að láta hanka sig á því. Í því felst æsifréttamennska eins og þar er stunduð. Djöfull sem það er andskoti fjarri manni að kaupa þennan Daunilla Viðbjóð.
Ekkiveljalélegtdomain.com
Þessir ákveðnu aðilar hefðu mátt hugsa sig AÐEINS betur um hvað þeir völdu sér sem domain...
3.141592653589793...
Nú er kominn tími á proper nördablogg. Ég er nefnilega loksins búinn að finna lag sem tekur því að hlusta á! Lengri útgáfan með myndbandi og alles er svo hér - Varúð, töluvert súrt, getur valdið meltingartruflunum og jafnvel þungun.
|