|
|
Undur vísindanna
Nokkrir brjálaðir heilasérfræðingar vildu skoða hvernig heilarnir í nokkrum helstu áhrifamönnum virkuðu svo þeir buðu Kofi Annan, Vladimir Putin og George W. Bush í "mat". Þegar þeir kumpánar mættu kampakátir í veisluna voru þeir snarlega rotaðir og heilasérfræðingarnir tóku til starfa. Fyrst opnuðu þeir hausinn á Kofi Annan, þar var allt troðfullt af tölvukubbum og blikkandi ljósum. Enginn vísindamannanna hafði séð nokkuð þessu líkt en allt virtist fúnkera vel svo þeir ákváðu bara að loka Kofanum áður en þeir skemmdu eitthvað. Næst opnuðu þeir toppstykkið á Putin. Þar var hinsvegar allt fullt af tannhjólum, keðjum og stálfjöðrum. Aftur voru vísindamennirnir gáttaðir og vissu ekkert hvað þeir ættu að gera með þetta klukkuverk. En þetta snérist allt og virtist virka svo þeir settu lokið aftur á Putin. Svo kíktu þeir ofan í hausinn á Bush og þá fyrst urðu þeir gáttaðir. Hann var gjörsamlega tómur nema hvað einn strengur lá í gegnum hausinn á milli eyrnanna. Nú hófust heitar umræður um hvernig þetta virkaði, einn hélt því fram að samkvæmt strengjafræðinni þá gæti rétt ofinn strengur sinnt óendanlega flóknum verkefnum. Annar hélt því fram að líklegast væri það tilgangur leiðtoga að vera samhljómur borgaranna og að tilgangur strengsins væri að titra eftir harmónískum hugsunum fólksins. En engum vísindamannanna bar saman um hver skýringin gæti verið svo þeir ákváðu að þeir þyrftu að skoða þennan streng nánar og byrjuðu á því að klippa á hann til að sjá hvað gerðist. Þá duttu eyrun af Bush.
Fítusar Gmail háðir tungumáli
 Bara örstutt fyrir þá sem nota Gmail. Það er frekar kúl að nota íslenska viðmótið og allt það, fá íslenskan spellchecker og svoleiðis en ef maður notar þetta íslenska þá fær maður ekki alla nýjustu fítusana. Til að fá allt nýjasta stöffið (t.d. webclips og chat) þá verður maður að velja US-English viðmótið. Þetta chat stöff er annars frekar kúl, þannig er talk messengerinn frá google kominn inn í gmail og ef þú velur að vista chat söguna þá geturðu leitað í henni um leið og þú leitar í tölvupóstinum. (Ég hef oft leitað að einhverju stöffi í tölvupóstinum án árangurs því ég hafði óvart bara verið að chatta um það)
þú.com og vefhýsing í ár fyrir 600 kall
Ég var víst búinn að lofa því að segja hvernig þið getið fengið ykkar eigin lén og vefhýsingu í ár fyrir minna en einn bíómiða. Fyrst smá listi yfir það sem maður er að fá því þetta er ekkert slor:
- 20GB í pláss
- 1TB í mánaðarlega traffík
- Ótakmarkaðir MySQL grunnar
- 3000 email addressur
- 75 FTP notendur
- Þægilegt vefumsjónarkerfi
- Wizardar fyrir myndagallerí og sum bloggkerfi
- +fullt annað
Til að fá þér svona ferðu bara á DreamHost og skráir þig fyrir áskrift sem er á $7,95 á mánuði. (engar áhyggjur, árið kostar samt bara $10 á endanum)
- Velur 1 árs prepaid áskrift ($119,40)
- Registerar full domain (.com .net .org eða.info)
- Svo skráirðu inn einhverjar upplýsingar um þig (sumt fer í whois fyrir domainið þitt)
- Svo kemur TRIKKIÐ! Í skrefi 5, Verify Total Seturðu textann "777" (án gæsalappa) í Optional Promo Code textaboxið og ýtir svo á update
- Þá áttu að fá textann: "7th Anniversary Promotion!: -$110.16 Your Total: $9.24". Semsagt í staðinn fyrir að borga $119,40 þá borgarðu bara $9,24 - sem er sirka 600 kall.
- Klárar svo að borga fyrir stuffið
En catchið er auðvitað að þetta er bara fyrir fyrsta árið. Eftir það borgarðu þessa $120 á ári - sem mér finnst reyndar ekki heldur mikið miðað við hvað maður er að fá þarna. Ef einhver vill svo vita hvernig maður stillir Blogger á svona hýsingu þá sendið mér bara línu.
|
|