|
|
Setja GPS hnit í myndir
Eitt sem mér finnst gaman að gera er að taka græjurnar sem ég á og gera þær pínu skemmtilegri með einhverjum nördaskap. Nýlega fór ég að skoða geotagging en það er sú hugmynd að tengja GPS upplýsingar við ljósmyndir. Til að átta sig betur á því hvað ég er að meina er hægt að skoða þessa mynd hér og smella á "sjáðu í Google Earth" hlekkinn. (Smellið svo bara á teiknibóluna í Google Earth) Ef þig langar að gera eitthvað svipað þá eru hérna helstu skrefin sem ég fór í gegnum.
Það sem þú þarft:
- Myndavél, hvaða digital myndavél sem er
- GPS tæki, ég notaði 6 ára gamalt Garmin eMap tæki. Ég held að maður eigi að geta notað flest GPS tæki sem hægt er að tengja við tölvu
- EasyGPS forritið, getur tengst fullt af GPS tækjum (óþarft ef þú ert með trackið sem GPX skrá) (frítt)
- WWMX Location Stamper , forrit sem færir GPS upplýsingarnar inn í EXIF data (þarft ekki clientinn) (frítt)
- Flickr reikning og Uploader (frítt)
- Google Earth (frítt)
Svona fer maður að þessu:
- Kveikir á GPS tækinu og bíður eftir að það nái staðsetningu
- Stillir tímann á myndavélinni sem þann sama og á GPS tækinu (þarf ekki í hvert skipti)
- Passar að GPS tækið sé stöðugt með staðsetningu meðan þú ert að taka myndir (ég hafði það í vasanum á myndavélatöskunni)
- Tekur myndir :)
- Tengir GPS tækið við tölvuna og nærð í trackið úr því með EasyGPS og vistar það sem gpx skrá
- Hleður myndirnar í WWMX Location Stamper, hleður inn gpx skránni (Add Tracks), velur þær myndir sem þú vilt GPS merkja og velur apply track.
- Sendir myndirnar inn í Flickr með Uploader og velur See Photos
- Á vefsíðunni sem birtist þá verður að setja eftirfarandi texta í description á öllum myndunum:
<a href="http://www.robogeo.com/Flickr2Map/?range=4010&tilt=70&heading=0">Google Earth</a> Svo er hægt að fikta í slóðinni sem var sett inn í skrefi 8. Þar getur maður stillt hvaða sjónarhorn er notað í Google Earth. Ég nota bara alltaf sömu slóðina (=> sama sjónarhornið). Þeir sem vilja geta fiktað í þessu. Range er fjarlægðin í metrum, tilt er gráður frá lóðrétta ásnum og heading er áttin í gráðum.
Það sem mér finnst svalt við þetta er að þetta bætir alveg nýrri vídd við myndirnar hjá manni. Þetta Flickr dæmi er kannski ekki neitt voðalega heitt en ég er pottþéttur á því að það munu fljótlega koma allskonar kúl forrit og fítusar fyrir svona GPS merktar myndir.
Það er svo ýmislegt meira um geotagging í wikipedia greininni (Ath. að Geobloggers virkar ekki)
Gleðilegan pí dag
Í dag er pí dagurinn (3.14). Leiðbeiningar um hvernig skal halda hann hátíðlegan er að finna hér.
Litlu smáatriðin
Vitið þið hvað er það fyndna við Frakkland? Það eru litlu smáatriðin. Ég meina, þeir hafa sama draslið hér eins og við höfum heima á Íslandi nema hvað þeirra er bara pínulítið öðruvísi. Dæmi: Þú getur labbað út í búð í Frakklandi og keypt þér bollur, bolludagsbollur, nema hvað þeir selja þær ekkert bara á bolludaginn, þeir hafa ekki hugmynd um hvað bolludagurinn er, þeir selja þær alla daga. En vitiði hverju þeir sprauta inn í bollurnar, þannig að þegar maður sker þær í sundur þá blasir þetta við? Þú ert kannski að hugsa um rjóma en þar hefðirðu rangt fyrir þér, nei þeir sprauta búðing inn í bollurnar og svo bætir maður bara rjómanum við sjálfur, nokkuð gott ha? Og veistu hvað þeir setja á kleinurnar sínar í Frakklandi? Flórsykur! Ég er ekki að spauga ég hef séð þá svoleiðis drekkja þeim í þessu ógeði.
p.s. Þú getur EKKI labbað inn á McDonalds í Frakklandi og pantað þér "Royal with Cheese" en þú getur hinsvegar fengið þér "Royal DELUXE with Cheese" það virðist sem það hafi ekki þótt nógu fínt að troða ofan í sig McDonalds borgara sem héti bara Royal svo þeir hafi neyðst til að hlaða Deluxe þarna aftan við. p.p.s. Og garcon þýðir þjónn.
|
|