|
Franskir fordómar
Stundum veit ég ekki hvað maður á að halda um þessar þjóðbundnu steríótýpur. Um Frakkana hefur maður t.d. heyrt að þeir séu dónalegir, vilji ekki tala ensku og að það sé stundum frekar slakt skipulagið hjá þeim. Eftir mína veru í Frakklandi verð ég að segja að þetta er óttaleg vitleysa. Meira að segja rónarnir í neðanjarðarlestakerfinu blóta á ensku meðan þeir, af einskærri hjálpsemi, ýta manni af afli í gegnum gjaldtökuhliðin sem virðast hönnuð til þess að hleypa fólki í gegn en ekki farangri þess.
Google Dagatal
Google þjónustunum er alltaf að fjölga, núna er hægt að fá sér Google Calendar. Þar getur maður skipulagt sig, sett inn remindera og hvað annað sem manni gæti dottið í hug að gera með dagatal, aðal svaleríið er samt að maður hefur aðgang að öðrum dagatölum (maður merkir allt public eða private). Þjónustur eins og þessi eiga eftir að há massíft stríð á næstu árum. Það er nefnilega gott að hafa dagatal í símanum, mikilvægt í vinnunni og svosem líka í heimatölvunni kannski en allt þetta sync vesen, til að stilla saman handtækin sín og tölvurnar, sökkar. Þess vegna er málið að hafa online dagatal sem maður getur notað bæði í símanum sínum og öllum tölvunum sínum. Þessi þjónusta gæti þessvegna orðið ansi vinsæl í framtíðinni.
Höktir Firefox þegar þú downloadar
Ég var farinn að vera illa pirraður á því að alltaf þegar ég downloadaði einhverju í Rebba þá var eins og hann frysi í smá stund. Ég var svo líklega að komast að því hver fjandinn var að valda þessu. Málið er að download managerinn í Firefox er ekkert sérlega klár kappi og þegar listinn þar er orðinn langur (20-30) þá getur þetta hökt farið að koma fram. Ég hreinsaði þessvegna út mín 200+ download úr listanum og þetta helvítis hökt er alveg horfið. (þetta er bara listinn sem hreinsast, hefur ekki áhrif á downloadin) Til að hreinsa ýtirðu bara á Ctrl+J og smellir á Clean Up - hlutur sem ég mun gera reglulega í framtíðinni. Edit: ehh, alltaf gaman að vera tregi gaurinn - auðvitað á maður bara að fara í tools-options-privacy og stilla fox á að hreinsa listann í hvert skipti sem maður lokar Firefox
|