|
|
Canon EOS 400D
Ég vissi ekki hver fjandinn var í gangi áðan, ég fann að eitthvað sjóðhitnaði í vasanum á mér og þegar nánar var að gáð þá var þetta VISA kortið mitt, sjóðheitt og glóandi í einhverjum hvítbláum ljóma. Ég vissi að þetta gat aðeins þýtt eitt. Einhver stórhættuleg ný græja hafði litið dagsins ljós sem ég myndi þurfa að kljást við að kaupa ekki. Ég kveikti að sjálfsögðu á gagnvarpinu* og mikið rétt, þarna blasti hún við mér í öllu sínu veldi - Canon EOS 400D. Þeir sem hafa ekki áhuga á myndavélum geta hætt að lesa hér. Eftir að hafa átt 300D í bráðum 2 ár þá þykist ég vita að þetta sé über vél. Fyrsta atriðið er mun vandaðari myndflaga, 10megap (semsagt betri upplausn heldur en í talsvert dýrari 30D vélum). Skjárinn er líka töluvert stærri en á 300D og þessi vél er með E-TTL II sem þýðir það að flassið sem ég á myndi nýtast mun betur. Svo er hún líka fljótari að kveikja á sér, fer pínulítið minna fyrir henni. Hún er svört og ekki silfurlituð eins og vélin mín. Það er betra noise reduction og rúsínan í pylsuendanum er svo að maður fær meira vald yfir metering á henni. (Vonandi fær maður líka meiri völd yfir fókusham - en ég sé ekkert um það enn) Hér er svo eitthvað flash um 400D *Gagnvarpið = Internetið
|
|