|
Sýnum samstöðu gegn einelti
 Eins og sum ykkar vita hefur Plútó nú verið sparkað úr samfélagi pláneta. Pláneturnar eru þessvegna bara átta núna (Merkúr, Venus, Jörð, Mars, Júpíter, Satúrnus, Þnnrass og Neptúnus). Þetta er auðvitað ekkert annað en versta einelti og við eigum ekki að styðja slíkt er það. Sýnum samstöðu með Plútó - göngum í torskyljanlegum stuttermabol!
Forrit
Þetta er bara bókamerkjablogg fyrir sjálfan mig. Firefox Picasa Google Earth Deepburner OpenOffice Foxit Reader Windows Defender Grisoft AVG VLC VNC 7zip
Bensín er glæpur
Bara að minna fólk á Atlantsolíu. Þeir voru núna enn og aftur að ríða á vaðið og lækka verð á bensíni. Sjálfur versla ég ekki við önnur olíufélög nema í neyð og hef ekki gert síðan Atlantsolía opnaði fyrstu stöðina í Reykjavík (eru fjórar núna held ég). Ég hef dælulykil sem gerir það algjörlega ekkert maus að dæla á bílinn auk þess sem hann veitir auka kr í afslátt upp á djókið. Ég hugsa að ég muni ekkert fyrirgefa hinum olíufélögunum alveg í bráð.
Flugleiðaþota í æfingum
Hér er verið að fljúga 757 þotu fáránlega nálægt jörðu - það sniðugasta er að þetta er þota frá Flugleiðum. Þetta er líklega það sem menn taka til bragðs þegar þeir verða Flug-leiðir. "Þetta er flugstjórinn sem talar, við lækkum nú flugið til að hræða rassgatið af fólkinu niðri í þessum dal þarna."
|