28.10.06 Firefox 2Bara rétt að minna fólk á að Firefox 2 er tilbúinn og kominn í dreifingu. Það er svosem ekki mikil breyting frá firefox 1.5, aðallega breytingar sem maður tekur lítið eftir auk þess sem nokkrir hlutir sem maður þurfti extension fyrir áður eru nú hluti af vafranum (t.d. getur vafrinn núna munað alla flipana þína næst þegar þú ræsir hann og því ekki þörf á sessionsaver viðbótinni). Það er svo kannski þess virði að vara fólk við að eins og er þá virka ekki öll extension á 2.0 (Fasterfox virkar t.d. ekki ennþá). En annars er þetta bara tóm hamingja og rebbi er talsvert betri og skemmtilegri heldur en IE7 (sem ég neiðist til að nota í vinnunni).
20.10.06 Ætti maður eitthvað að pæla í þessu?Ég og Hafrún fórum í bíó í gær. Við fórum að sjá An Inconvenient Truth. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er þetta heimildamynd um hitun jarðar, hvar við erum stödd og hverju við megum búast við. Myndin er vel sett fram og byggð upp á traustum vísindalegum grunni. Þetta er mjög áhugaverð mynd og fær mann til að hugsa. Myndin hefur fengið rosalega góða dóma, t.d. er hún með 8,2 í einkunn á IMDB og 93% á Rotten tomatoes og það er alveg merkilega gott miðað við heimildamynd. Það er ekki oft sem það eru framleiddar bíómyndir sem geta talist mikilvægar, en þessi er áreiðanlega ein af þeim. Fyrir þá sem hafa séð myndina þá er hér slóðin sem var bent á og ég er viss um að sum ykkar hafa áhuga á að kíkja á, http://www.climatecrisis.net/ en persónulega finnst mér þessi síða hér MUN áhugaverðari. Ég held nefnilega að ef maður ætti ekki að pæla í þessu þá er eitthvað fátt sem maður ætti yfir höfuð að vera að pæla í - hitun jarðar er staðreynd, hún er óumdeilanlega byrjuð og eini vafinn varðandi hitun jarðar er hvort við munum bera skynsemi til að gera eitthvað í málunum. Svo ef þú ætlar þér að sjá myndina, eða horfa á hana aftur, smelltu þá á myndina hérna fyrir ofan.
15.10.06 TilviljunUm daginn þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni mætti ég gangandi einstaklingi sem var af útlitinu að dæma talsvert þroskaheftur. Ekkert merkilegt við það auðvitað, nema hvað næsta dag þegar ég var á leiðinni heim úr vinnunni mætti ég honum aftur og á sama stað. Þegar þetta gerðist í þriðja skiptið var ég farinn að hugsa. Hvernig gat eiginlega staðið á þessu? Var hægt að útskýra þetta með sameiginlegri stundvísi? Gat þetta verið tilviljun? Eða er ég þroskaheftur eins og hann?
11.10.06 Bigger than Jesus?Þar sem Google veit ALLT þá ákvað ég að spyrja það hvort væri stærra, Bítlarnir eða Jesú. Hið óskeikula alltumlykjandi Google hefur gert það opinbert, Bítlarnir eru stærri. Annars er þetta trends dæmi frekar skemmtilegt.
9.10.06 Nýtt skjaldarmerkiEr ekki kominn tími til að skipta um skjaldarmerki? Á skjaldarmerki okkar höfum við landvættirnar fjórar úr Heimskringlu; gamm, dreka, bergrisa og griðung. Landvættirnar vernduðu landið okkar gegn erlendum ágangi. Í upphafi var það Danakonungur sem ásældist landið - í seinni tíð hafa aðrir erlendir aðilar sóst eftir gæðum landsins. Nú virðist svo komið að fólki sé orðið almennt sama um landið okkar, við færum of stórar fórnir fyrir of lítinn ávinning, það að hér séu lögð í rúst stór landsvæði fyrir erlend stórgróðafyrirtæki finnst sumum hið sjálfsagðasta mál. Því finnst mér að við ættum að hætta þessari hræsni og fjarlægja landvættirnar af skjaldarmerkinu okkar þar sem þær eru ekki lengur tákn þess sem við sem þjóð stöndum fyrir. Við hönnun á nýju skjaldarmerki væri svo best að líta til skjaldarmerkis skoðanabræðra okkar í Norður Kóreu.
3.10.06 Hvað á ég að gera með 2TB á mánuði?Eins og ég skrifaði um hér áður þá er ég með frekar nettan hýsingardíl. Ég var í raun bara ánægður með þetta eins og þetta var en þá þurfti dreamhost endilega að gefa mér fría uppfærslu á reikninginn minn. Þannig að núna er ég með 201GB í vefpláss og 2,3terabæt í mánaðarlega bandvídd! (Hversu margir íslenskir vefir fara yfir það?) Hvers á maður að gjalda eiginlega? Ég borga í sakleysi mínu 600kall fyrir domain fyrir bloggið mitt og svo er það uppfært í einhverja asnalega stóra vefhýsingu þannig að ég fæ samviskubit yfir því að vera bara með mitt smánarlega blogg á þessu. Hvað á ég að gera? Allar hugmyndir vel þegnar. Ef aðra langar í svona þá kostar svona 200GB/2TB hýsing með fríu léni bara $10 dollara á mánuði og ef þú borgar ár fram í tímann og gefur promotional code 9999 þá færðu $99 í afslátt, semsagt fyrsta árið fyrir $20 ~ 1400kall. Nánar hérna