|
Hann afi gamli
Eins og sum ykkar vita er ég fæddur og uppalinn að Böðmóðsstöðum. Það sem færri vita er að langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langafi minn hét einmitt Böðmóður. Skemmtileg tilviljun. Böðmóður var samt ekki Íslendingur, enda þekktist Ísland ekki í hans lífstíð. Sonur hans var hinsvegar Þorbjörn "loki" Böðmóðsson, landnámsmaður í Djúpafirði fæddur árið 845. Hvað hann vann sér til frægðar til að hljóta viðurnefnið loki veit ég því miður ekki - en varla hefur það verið heiðarleiki og prúðmennska. Í Landnámu er sagt þetta um hann
Þorbjörn loki hét maður, son Böðmóðs úr skut; hann fór til Íslands og nam Djúpafjörð og Grónes til Gufufjarðar Íslendingabók er annars alveg skelfilega sniðug, þar get ég líka rakið ættir mínar til Ingólfs Arnarsonar en hann er einmitt langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langa - langafi minn.
Elvis lifir!

Vissuð þið að það er ekki nóg með það að hann Elvis sé á lífi heldur býr hann á Íslandi! Nánar tiltekið á Klapparstígnum
iphone
http://www.apple.com/iphone/phone/
Færeyingar
Vitið þið hvað Langreyður heitir í Færeyjum?
Nebbafiskur
Alltaf gaman að kíkja í færeyskuna. Vitið þið hvað er fyndið við færeyskuna? Þeir hafa sömu orðin þar og við höfum hér, nema hvað þeirra eru bara pínulítið öðruvísi. Jörðin er kölluð jarðarknøttur, í staðinn fyrir tengslanöfn eins og mágkona og tengdasonur nota þeir konusystir/bróðurkona og dótturmaður(talsvert sniðugara), ljósritunarvél er ljósritmaskina (þeir nota alltaf maskína yfir vél), bolli er koppur, kvenfólk er konufólk, landafræði er landalæra, gáfur eru klókskapur, gallabuxur eru cowboybuksur, blómvöndur er blómutyssi, skoðunarferð er útferð, læknir er doktari, elskhugi er elskari, vitlaus er fávitskutur, eftirlitsmaður er grannskoðari, geislaspilari er fløguspælari og barnavagn er afleiðingavagn!
|