|
|
Framtíðarbíll
 Jæja, þá er það orðið opinbert - ég og Hafrún fórum hnetur og keyptum okkur nýjan bíl! Ég hef lengi furðað mig á því hverskonar fólk kaupi eiginlega glænýjan bíl - og núna veit ég svarið, léttruglað fólk. En svona til að afsaka okkur þá eru Toyota Prius bara svo æðislegir bílar að það er án spaugs varla hægt að fá þá notaða. Það var semsagt núna á föstudaginn sem við fengum þennan glansandi fína Prius í hendurnar og þvílíkur draumabíll. Skemmtilegur í akstri, hlaðinn þægindum, aflmikill, ódýr í rekstri og umhverfisvænni en venjulegir bensínbílar. Núna þrem dögum síðar erum við búin að keyra bílinn 1000km, skruppum aðeins til Akureyrar. Á leiðinni til Akureyrar skellti ég honum bara í cruise control og hann rann á 100km hraða alla leið, upp allar brekkur án þess að hægja á - en það varð reyndar til þess að við eyddum ALLT of miklu bensíni ... 6,2 á hundraðið. Á leiðinni til baka ók ég aðeins betur og þá eyddi hann 5,3 á hundraðið, við ókum frá Akureyri til Reykjavíkur á 20,4 lítrum af bensíni, tankurinn var ekki hálfur. Mér reiknast til að miðað við óbreytt bensínverð þá munum við eyða um 6000 krónum minna í bensín á mánuði heldur en við vorum að gera. Þetta þýðir það að eftir 40 ár - þá verður bíllinn búinn að borga sig upp! >:o) Umhverfissjónarmiðið hjálpaði okkur líka að taka þessa ákvörðun. Venjulegur fjölskyldubíll er að losa tæp 4 tonn af koltvísýringi út í andrúmsloftið á ári miðað við 20.000km akstur (já, 4 tonn), til þess að vinna það magn af CO2 úr loftinu þarf 0,9 hektara af skógi. Til samanburðar losar Priusinn bara 2 tonn eða sem krefst 0,5 hektara af skógi til að hreinsa aftur. Þið getið séð hvað bíllinn ykkar losar mikið af CO2 á ári hérna (ansi merkilegur vefur). Til að toppa þetta allt saman þá eru þetta mjög öruggir bílar, fá fimm stjörnur af fimm mögulegum í árekstrarprófunum og þeir hafa fengið eina hæstu einkunn sem gefin hefur verið fyrir öryggi barna, hann er auðvitað með ABS og svo er hann með stöðugleikakerfi en það er talið að slíkir bílar séu 20-30% líklegri til að sleppa við slys. Svo er þetta líka Toyota, það hjálpar - það var gott að díla við umboðið og miðað við gömlu Toyotuna okkar sem er árgerð 1991 og bilar aldrei þá grunar okkur að þetta sé upphafið á frábæru sambandi.
|
|