|
|
Joost invite
Það eru liðin rúmlega 4 ár síðan við Hafrún hentum sjónvarpinu okkar. Síðan þá hefur ekki verið sjónvarp á heimilinu, en þess í stað höfum við skjávarpa sem er tengdur við tölvu (nei, hún afruglar ekki). Með þessarri uppsetningu horfum við á slatta af bíómyndum og sjónvarpsþáttum á stafrænu formi en erum samt gjörsamlega laus við það sem maður gerði stundum áður, en það var þetta gefandi athæfi að sitja heilt kvöld fyrir framan imbann þó ekkert af efninu væri skemmtilegt. Í dag finnst mér að ætlast til þess að sjónvarpið æli í mann skemmtilegu sjónvarpsefni álíka gáfulegt og að bíða við póstkassann og bíða eftir að hann skili mér skemmtilegu lesefni.
Það sem hefur samt vantað sárlega er einhver þjónusta sem bíður upp á vandað efni á rafrænan hátt. Mér skilst að það sé hægt með einhverjum krókaleiðum og skráningu á kreditkorti í Bandaríkjunum að kaupa þætti af iTunes en ég nenni bara ekki svoleiðis veseni og maður veit aldrei hvenær verður lokað á það - það er auðvitað hægt að sækja flest á Pirate bay en sem viðmót að skemmtiefni sökkar það herfilega. Þessvegna er ég mjög spenntur að fylgjast með Joost. Joost er tölvusjónvarp, þetta er allt öðruvísi en youtube og það allt, þetta er full-screen, þægilegt í notkun og er með talsvert af ágætu efni, t.d. er þarna talsvert af heimildaþáttum og einu kvöldi eyddi ég í að horfa á hvern þáttinn á fætur öðrum af Fifth Gear sem er bílaþáttur í stíl við Top Gear. Eins og er þá er allt efnið frítt en þegar fram líða stundir mun maður geta horft á spánýtt efni í flottum gæðum þarna gegn hógværu gjaldi og það er nákvæmlega það sem mig langar í. Geta bara kveikt á Joost, stillt á Heroes áskriftina mína og sett nýjasta þáttinn af stað án þess að þurfa að bíða eftir einhverju kjaftæði. Þannig sé ég þetta allavega fyrir mér en það á margt eftir að skírast í þessu, sérstaklega varðandi verð og svoleiðis. Þetta er ennþá í Betu og ef ykkur langar að prófa sendið mér þá bara póst og ég sendi ykkur invite.
Þrívíddarbíó
Ég fór í fyrsta skipti á ævinni í þrívíddarbíó um daginn og ég verð að segja að þetta var flottara en ég bjóst við. Ég fór í Kringlubíó að sjá Meet the Robinsons, ansi skemmtileg fyrir fjölskylduna. Þrívíddin virkar þannig að maður þarf að hafa þrívíddargleraugu (kosta um 200kr held ég) en þau eru ekki með litaðri filmu og þessvegna er myndin eðlileg á litinn sem gerir þetta mjög töff. (Í raun er circular polarizer í gleraugunum) Þrívíddin er ótrúlega raunveruleg, hlutir virðast koma ansi nálægt manni og ég fann ekki fyrir neinum óþægindum út af þessu. Ef planið er að tékka á þessu þá hugsa ég annars að fólk ætti að drífa sig því sýningum er farið að fækka. Og ef þið missið af þessu þá er það ekki mikið mál því í október mun Nightmare before christmas örugglega koma í sýningar í þrívídd. Fyrir þá sem vilja vita meira um tæknina þá má skoða Wikipedia
Svo bregðast krosstré...
Já, það fór þá fyrir mér eins og svo mörgum öðrum. Þrátt fyrir að hafa gert þetta talsvert á mínum yngri árum þá hélt ég satt að segja að ég væri laus úr þessu og þyrfti ekki að hafa áhyggjur af þessu lengur. En svo þegar síst varði, féll ég kylliflatur fyrir hjólreiðabölinu á ný.
Þetta byrjaði allt nógu sakleysislega, ég fór að athuga hvort ég gæti ekki gert við hjólið hennar Hafrúnar sem hefur legið óhreyft í innkeyrslunni hjá okkur síðan árið 2003. Eftir að hafa eytt heilum degi í að losa og pússa burtu ryð, stilla gíra og smyrja þá varð ég vitaskuld að prófa gripinn. Hjólaði pínulítið um götuna, ósköp saklaust bara, svo hjólaði ég með Hafrúnu í Laugar og hjólaði svo og keypti mér hjálm og hraðamæli, þá hefði ég svosem að hafa átt að vita hvert stefndi. Áður en ég vissi af var ég svo búinn að hjóla í vinnuna og skrá árangurinn niður í töflureikni, eftir það var ekki aftur snúið.
En þetta var auðvitað ekki nóg fyrir hjólreiðapúkann. Ég sökk dýpra og dýpra, ég byrjaði að hjóla án þess að hafa neinn áfangastað - tilgangslausar hjólreiðar út í loftið, einungis til þess að enda aftur þar sem ég byrjaði, á meðan bíllinn stóð í innkeyrslunni og bensínið fúlnaði í tanknum. Það var á þessum tímapunkti sem ég tók eftir því að líkami minn var farinn að hrörna. Leið mín til hjólreiðaglötunar var farin að taka sinn toll, ég var farinn að leysast upp og hverfa fyrir augum mér, gramm fyrir gramm.
Hér hefði ábyrgur einstaklingur gripið í taumana og sagt hingað og ekki lengra en það var eins og mig skorti alla dómgreind og vilja til að hætta. Þess í stað virtist þetta bara ágerast og ég fór að sækjast eftir að komast yfir stærra hjól, hjól sem myndi gera mér kleift að hjóla lengra og hjóla hraðar (og þó hjólið hennar Hafrúnar sé ágætt þá leit ég svolítið út eins og sirkusbjörn þegar ég var á því). Eftir talsverða leit og nákvæmar rannsóknir á sífellt dýrari hjólum seldi ég loks sál mína fyrir hjól, Hybrid að sjálfsögðu. Engin feit og mjúk fjallahjóladekk fyrir mig lengur heldur kevlarstyrktar 80punda skurðarskífur, fleiri gírar, færri kíló og meiri þrýstingur á mig að standa mig betur. Og það versta var að nú gat Hafrún jú fengið hjólið sitt aftur og áður en ég vissi var ég farinn að draga fjölskyldu mína niður í hjólreiðarnar líka, - svo mikil er firringin.
Nú er svo komið að ég veit ekki lengur mitt rjúkandi ráð. Ef þið sjáið mig hjólandi meðfram Sæbrautinni á leið í eða úr vinnu megið þið endilega skrúfa niður rúðuna og æpa á mig "Maður á ekki að bjóða syndinni í kaffi!" eða einhvern álíka innblásinn boðskap. Þá kannski tekst að snúa mér aftur til hins sanna íslenska lífstíls; að fara sinna leiða á færanlegum bensínkatli.
LINUX?
Ég held að ég sé á leiðinni með að skella mér loksins á bólakaf í Linux. Ég veit ég ætti kannski ekki að opinbera þetta en fram til þessa hef ég eiginlega BARA notað windows á vélunum mínum og það bara gengur hreinlega ekki lengur.
Mér sýnist líka að þetta sé góður tími til að skipta, ég mun líklegast fá mér nýja tölvu í sumar eða næsta haust og satt að segja þá hef ég bara engan áhuga á því að fá mér Windows Vista. Það er stútfullt af endalausum staðfestingum ("JÁ, ég vil downloada þessu!", "Já, ég vil keyra þetta forrit - þessvegna TVÍKLIKKAÐI ÉG Á ÞAÐ!", "JÁ ég vil EYÐA þessarri skrá!!") og öryggishyndrunum ("You do not have permission to delete this file"). Svo er DRM líka hlutur sem ég er ekki hrifinn af og Vista er beinlínis hannað með DRM í huga. Fyrir þá sem ekki vita þá er DRM mekkanismi sem hindrar fólk í að gera það sem það vill með tölvuna sína, það getur bannað fólki að afrita lög sem það hefur borgað fyrir yfir á mp3 spilarann sinn eða neitar að spila HD myndbönd af því það er hugbúnaður í gangi sem er ekki DRM samþykktur!
Þetta og fleira er að verða til þess að ég hef hugsað mér að setja ekkert windows upp á nýju tölvunni. Þess í stað ætla ég að setja upp Kubuntu 7.04. Kubuntu er afar notendavæn Linux uppsetning sem á ekki að vera neitt flóknari en Windows í uppsetningu. Útlitið á henni er ansi gott eins og sjá má af þessum skjámyndum og þetta er öruggt og öflugt stýrikerfi.
Helstu áhyggjur mínar snúast um hvort ég finni forrit til að sjá um allt sem ég geri venjulega í windows og þær áhyggjur mínar eru eiginlega alveg horfnar enda orðið mikið úrval af vönduðum hugbúnaði fyrir Linux. Það eina sem ég á eftir að finna út úr er hvort ég fá jafn gott forrit til að vinna með RAW myndir og það sem ég hef verið að nota, og svo hvernig það mun virka að deila gögnum á milli windows og Linux tölva á heimilinu.
En þetta er allavega stefnan, Kubuntu á tölvuna og frían (löglegan) hugbúnað á hana, því eitt það besta við þetta allt saman að hugbúnaðurinn er allur ókeypis, ég slepp við að borga 12.000 fyrir Vista og annað eins fyrir Office, það munar um það. Kubuntu 7.04 ISO (Innlent download) http://linuxvefurinn.is/
|
|