gummih

Twitter Updates

heyrðu mig á twitter

gummih@gmail.com

Reynslubrunnur Hugbúnaðarfyrirtækja

það sem ég er að skrifa
Framtíðarsýn Þjóðar
Endalaus tónlist af Blip.fm
Þráðlaust net í Linux
Maður hefði kannski átt að sjá þetta fyrir?
Takk, riddari götunnar!
Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja
Nýsköpun.org
Jæja - og hvað svo?
Forgangsröðina í lag - sólarvörn !!
Eldur og olía

Skrif á Hugmyndaráðuneytinu

úr gagnvarpinu
Nýsköpun.org
Ljósmyndakeppni
Baggalútur
Gizmodo
ML-inga grúppa
Arnar Freyr
Einar
Emma og Bjarki
Eyrún og Jobbi
Gunnare
Gommit
Gummi Halldórs
Halla
Hjalli
Hrund frænka
Íris Engill
Lína og Alex
Óskar Páll
Sigurjón Aðalönd
Sindri
Þarfagreinir

gamla draslið

  • apríl 2002  
  • maí 2002  
  • júní 2002  
  • júlí 2002  
  • ágúst 2002  
  • september 2002  
  • október 2002  
  • nóvember 2002  
  • ágúst 2003  
  • febrúar 2004  
  • mars 2004  
  • apríl 2004  
  • maí 2004  
  • júní 2004  
  • júlí 2004  
  • ágúst 2004  
  • september 2004  
  • október 2004  
  • nóvember 2004  
  • janúar 2005  
  • febrúar 2005  
  • mars 2005  
  • apríl 2005  
  • maí 2005  
  • júní 2005  
  • júlí 2005  
  • ágúst 2005  
  • september 2005  
  • nóvember 2005  
  • desember 2005  
  • janúar 2006  
  • febrúar 2006  
  • mars 2006  
  • apríl 2006  
  • maí 2006  
  • júní 2006  
  • júlí 2006  
  • ágúst 2006  
  • september 2006  
  • október 2006  
  • nóvember 2006  
  • desember 2006  
  • janúar 2007  
  • febrúar 2007  
  • mars 2007  
  • maí 2007  
  • júní 2007  
  • ágúst 2007  
  • október 2007  
  • desember 2007  
  • janúar 2008  
  • febrúar 2008  
  • júní 2008  
  • júlí 2008  
  • október 2008  
  • nóvember 2008  
  • janúar 2009  
  • mars 2009  
  • apríl 2009  
  • 4.6.07
    Nintendo Wii

    Maður er víst eins gamall og maður nennir að vera er það ekki? Fyrir ekki svo löngu síðan var keypt leikjatölva á heimilið og hvort sem þið trúið því eða ekki þá var ég ekki nema að hluta til ábyrgur fyrir kaupunum - en líklegast hef ég séð mest um að fjárfestingin færi ekki til spillis.

    Núna hefur tölvan verið þrjá mánuði á heimilinu og nýjabrumið farið af og ég get sagt að þessi tölva er bara algjör snilld. Þar er tvennt sem spilar stærstan þátt, fjarstýringin og leikirnir sjálfir. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá skynjar fjarstýringin hvernig maður hreyfir hendina. Þessvegna heldur maður á fjarstýringunni eins og golfkylfu þegar maður spilar golf og sveiflar henni þannig líka, í leik eins og Legend of Zelda þá virkar fjarstýringin eins og sverð og með viðhenginu, sem er aukafjarstýring til að hafa í hinni hendinni, þá getur maður farið í box. Maður lemur þá bara út í loftið með fjarstýringarnar í höndunum til að boxa og það er svolítið mikið skemmtilegra heldur en einhver fingraleikfimi eins og tíðkast í flestum leikjatölvum. Varðandi leikina, þá virðist það bara vera einhvernveginn þannig að á Nintendo er lagt meira upp úr spilun leiksins heldur en grafík (enda er grafíkin ekki sterkasta hliðin á Wii). Til dæmis þá fylgir leikur með tölvunni sem heitir Wii Sports. Í honum er hægt að spila Tennis, Golf, Keilu, Hafnabolta og Box. Þessi leikur er með mjög einfalda grafík, hann notar Mii kallana (kem að þeim á eftir) og er alveg ótrúlega skemmtilegur leikur til að grípa í með vinum og kunningjum. Það er sko hópur fólks sem hefur fengið massívar harðsperrur eftir að hafa spilað Box hjá okkur. Einnig virðist meiri áhersla á að gera skrítna, ruglaða og aðra óvenjulega leiki á Wii þannig að úrvalið er mjög fjölbreytt og margir skemmtilegir partýleikir.

    Mii kallarnir eru kallar sem þú hannar sjálfur og geta nýst í mörgum leikjum. Ég bjó mér til kall sem er bara ansi líkur sjálfum mér og það gerir þetta oft pínu skemmtilegra, allavega leggur maður pínu meira í sölurnar til að vera ekki rotaður í boxinu þegar maður hefur fjárfest hluta af sjálfinu í kallinum á skjánum. Allar framfarir og high scores geta vistast með Mii kallinum þínum og ef maður fer að hitta einhvern annan sem á Wii þá getur maður tekið fjarstýringuna sína með og geymt Mii kallinn sinn á henni.

    Virtual Console er eitt af því sem mér finnst skemmtilegast við tölvuna. Það er netverslun þar sem maður getur downloadað fullt af gömlu góðu leikjunum og spilað á Wii. Ég er t.d. búinn að sækja Super Mario Bros, Sonic the Hedgehog, Pac-Man og Excite Bike sem ég er viss um að margir hafa spilað gjörsamlega til dauða. Leikirnir kosta mis mikið, þessir elstu af NES eða SEGA kosta sirka 500kall en leikir af nýrri leikjatölvum eins og SNES eða N-64 kosta meira.

    ÉG er líka ánægður með að hún er frekar lítil, hljóðlát og er hlutlaus í hönnun svo hún fer alveg ágætlega í stofunni. Hún er svo með WiFi og í henni er fínn browser (Opera) tölvan skynjar hvert maður bendir fjarstýringunni og þessvegna hefur maður músarbendil á skjánum.

    Gripurinn er auðvitað ekki gallalaus. Í samanburði við Xbox360 og PS3 þá er Wii með slappari grafík og hljóð og eins og er þá er einungis kominn út einn leikur sem nýtir sér netspil. Líkt og með margar aðrar leikjatölvur þá er svolítið af földum kostnaði í aukahlutunum. Það fylgir t.d. bara ein fjarstýring með tölvunni og auka fjarstýringar eru dýrar. (Mæli með að kaupa leikinn Wii Play, hann er í anda Wii Sports og það fylgir auka fjarstýringu með honum). Síðan þarf maður að kaupa auka viðhengi líka (nunchuck) til að tveir geti spilað box og svo splæsti ég í component snúru til að fá 480p upplausn. Verð á leikjum er svo eitt sem margir horfa í, það hefur verið helst til hátt síðan vélin kom út um jólin en núna er Elko að koma inn í samkeppnina og þá sýnist mér að leikirnir séu að lækka úr 6.500kr niður í 5000.

    Á heildina litið skemmtilegasta græja og býður upp á eitthvað nýtt.

    Google

    Gagnvarpið
    gummih.com
    Nýjustu comment:

    facebook prófíllinn minn

    ThinkGeek

    Powered by Blogger

    Weblog Commenting by HaloScan.com

    eXTReMe Tracker atom feed

    Add to iGoogle