|
|
Snilld! MugiBoogie yfir netið, ekkert kjaftæði
Stundum rekst ég á eitthvað sem mér finnst svo mikil snilld að ég hreinlega verð að kjafta því í alla sem ég rekst á (afsakið). Mugison var að gefa út nýjan disk. Tónlistin er frábær en það er þó ekki tilefni þessa bloggs. Málið er að ég er svo ánægður með hvernig hann dreyfir disknum. Maður kaupir hann bara á síðunni hans og getur downloadað honum um leið auk þess sem diskurinn sjálfur er síðan sendur til manns í pósti.
Við þetta eru fjölmargir kostir. Í fyrsta lagi fæ ég tónlistina mína með lágmarks veseni, downloadið tók enga stund, hún er í góðum gæðum (320kbps) og mp3 útgáfan er allavega gjörsamlega laus við DRM afritunarvarnir þannig að downloadið er actually nothæft fyrir mig (ég hef ekki athugað mp4/ACC downloadið). Ég hlusta talsvert á tónlist - en ég nota ekki geisladiska (á ekki einu sinni geislaspilara) og ef það er eitthvað endalaust vesen að flytja tónlistina á milli tölva eða yfir á símann minn þá er hún ónothæf fyrir mig. Þessvegna skiptir öllu að tónlistin mín sé DRM-laus. Maður fær svo líka sjálfan diskinn þannig að maður er gulltryggður að það verður ekkert vesen og verðið, 1799 kr, verður að teljast sanngjarnt verð (það er enginn sendingarkostnaður). Vonandi fær Mugison sem mest af þessum pening því hann á það svo sannarlega skilið. Það er allt of algengt að millimennirnir hirði allan ágóðan af góðu starfi tónlistarmanna.
Annað nýlegt dæmi um svipað framtak er nýi diskurinn með Radiohead, In Rainbows. Þar getur maður fengið DRM laust download (160kbps) og maður RÆÐUR hvað maður borgar fyrir það. Án spaugs, þú ræður, þú mátt borga 0kr ef þú vilt (en það er bara fyrir downloadið).
Vonandi er tónlistarmarkaðurinn að breytast til hins betra eins og hann Hjalli var að tala um, þar sem tónlist er ódýrari fyrir neytendur en gefur meira í aðra hönd fyrir listamennina.
Kvikmyndanörd
60% Movie Freak Rakst á þetta heiftarlega góða próf - ég tel mig vita fjandi margt um bíómyndir en fékk þó ekki hærra en 60%
i'm
  Ef þú notar Messenger þá er til sniðug leið til að gefa örlítið til góðgerðamála. Maður setur sérstakan kóða í messenger nafnið sitt og þá fer hluti af auglýsingatekjum messenger til málstaðs sem þú velur. Ég sá þetta fyrst hjá Arnari Frey.
Þetta er mjög einfalt, ef þú setur til dæmis kóðann *unicef fyrir framan messenger nafnið þitt þá ertu strax farinn að gefa pínulítið til barnahjálpar sameinuðu þjóðanna með hverju messenger samtali. (Til að breyta nafninu þínu smellirðu á nafnið þitt í messenger glugganum, velur options og breytir þar textanum í "My display name"). Eini munurinn fyrir mann sjálfan er að það kemur lítið i'm icon fyrir framan nafnið þitt (ef það kemur ekki þá þarftu að uppfæra messenger til að þetta virki).
Maður getur svo valið á milli nokkurra málefna til að styrkja, skáletruðu kóðarnir eru það sem maður setur í display nafnið sitt til að styrkja málefnið
*red+u American Red Cross *bgca Boys & Girls Clubs of America *hsus Humane Society of the United States *naf National AIDS Fund *mssoc National MS Society *9mil ninemillion.org *sierra Sierra Club *help StopGlobalWarming.org *komen Susan G. Komen for the Cure *unicef U.S. Fund for UNICEF Sjá nánar á im.live.com
|
|