gummih | gummih@gmail.com | |||
|
14.1.08
Það er jú svo að hvert einasta gamlárskvöld breytist Ísland í risavaxinn eldflaugarhreyfil í um klukkutíma eða svo (sjá mynd). Þetta er gert á hárnákvæman hátt (á miðnætti) þegar Ísland snýr beint frá sólinni og flugeldarnir sameina allir krafta sína til að hnika jörðinni ofur-oggu-ponsu-pínu-pínkulítið nær sólinni heldur en síðasta ár. Þetta er svo endurtekið hvert einasta ár svo að alltaf hnikumst við nær og nær sólinni. Þetta er samsæri segi ég! Því hverjir eru það sem vilja aukna hlýnun jarðar - kannski við Íslendingar sem nennum ekki að skafa snjóinn af bílnum okkar á morgnanna? Kannski við Íslendingar sem þolum ekki að þurfa að setja á okkur húfu eða detta á rassinn í blankskónum út af þessu hálkudrasli? Hvert einasta ár sameinast heil þjóð í illgjörnum tilgangi þess að breyta gangi himintunglanna svo þau þjóni þeirra eigin dutlungum. Hver einasti maður, kona og barn nurlar saman öllum þeim krónum sem þau geta og eiða allri upphæðinni í að kaupa alla þá flugelda sem þau mögulega geta. Fjandsamlegt samsæri fyrir tugi milljarða ár hvert. Ef áfram heldur sem horfir þá endar með því að allir jöklarnir okkar bráðna og öll fínu uppistöðulónin okkar munu þorna upp, sjórinn hækkar þannig að Seltjarnarnesið sekkur og það verður ólíft af hita á Kanarí - hvert ættu þá Íslendingar að fara til að komast á ströndina? Til Færeyja? Eða á Rauðasand?? Þá held ég nú að glansinn væri farinn af. Við ættum að skammast okkar og hætta þessu brjálæði strax. Nú eða þá að við gætum tekið upp á því að halda nákvæmlega jafn stórar flugeldasýningar á hádegi þann 1. júlí ár hvert til að vega upp á móti þessu - það ætti að vera ásættanlegt.
6.1.08
Svo fékk ég tvær eðal bækur í afmælisgjöf líka. Ljósmyndabókina Heaven to Hell eftir David LaChapelle, geigvænlega sterkur stíll hjá honum, svona svolítið út í einhverskonar neón glamúr og er einn vinsælasti listræni ljósmyndari samtímans. Hin bókin sem ég fékk var Earth: Then and Now sem er líka alveg mögnuð bók. Eins og nafnið bendir til fjallar hún um hvernig jörðin er að breytast og bókin samanstendur aðallega af fyrir-eftir myndum. Hún skiptist niður í nokkra kafla, m.a. hlýnun jarðar, náttúruhamfarir, stríðsátök og uppbygging borga og það er merkilegt að sjá hlutina svona svart á hvítu, eins og t.d. breytingarnar í Indónesíu eftir flóðbylgjuna, hvernig skógum í Víetnam var eytt í stríðinu eða bara hvernig Benidorm var ennþá veiðiþorp í kringum 1960. Til að toppa daginn fórum við Hafrún svo á Sjávarkjallarann um kvöldið - þvílíkur eðal matur. Við fengum okkur það sem kallast Exotískur matseðill hjá þeim, sem er svona sýnishorn af flestu á matseðlinum hjá þeim. Við fengum sex mismunandi forrétti, allir verulega góðir, m.a. humar og flugfiskahrogn, í aðalrétt var svo lax, skötuselur, saltfiskur og túnfiskur með mismunandi meðlæti og að auki var hreindýr í þremur mismunandi sósum sem er einfaldlega sá besti matur sem ég hef fengið um dagana. Þessu lauk svo með fjórum mismunandi tegundum af ís og lítilli súkkulaðiköku. Alveg ótrúlega góður matur, þetta verður líklegast allt niður á við héðan í frá!! |
|
|||