|
|
Dwight D. Eisenhower
Margir kannast við fræga ræðu Dwight D. Eisenhower sem er m.a. sýnt úr í upphafi myndarinnar JFK (Oliver Stone) og heyra má að hluta í þessu myndskeiði. Þar varaði hann við hættunni á því að her-iðnaðurinn í Bandaríkjunum næði að sölsa undir sig of mikil völd. Hann sagði:
"In the councils of government, we must guard against the acquisition of unwarranted influence, whether sought or unsought, by the military-industrial complex. The potential for the disastrous rise of misplaced power exists and will persist." -- Dwight D. Eisenhower, Farewell Address January 17, 1961 Það er mikilvægt að hafa í huga að þetta var ekki einhver "skítugur hippi" sem hataði byssur sem var að mæla gegn her-iðnaðinum heldur var þetta forseti Bandaríkjanna og æðsti yfirmaður heraflans árin 1953-1961. Hann hafði líka þjónað sem hermaður og ekki bara einhver hermaður heldur var hann æðsti yfirmaður sameinaðra hersveita bandamanna í Evrópu í seinni heimsstyrjöldinni. Þetta var síðasta stóra ávarp forsetans, hann var að fara úr embætti og þetta var einn af hlutunum sem honum þótti mikilvægast að miðla til fólksins þegar hann var að láta af völdum. Sjáið þið George W. Bush fyrir ykkur að vara fólk við hættunni sem stafar af því að aðilar tengdir her-iðnaði hafi áhrif á stjórnvöld?
Margt sem Eisenhower sagði var ákaflega áhugavert og verulega ólíkt stefnu repúblikana í dag eins og t.d. þetta:
"Should any political party attempt to abolish social security, unemployment insurance, and eliminate labor laws and farm programs, you would not hear of that party again in our political history. There is a tiny splinter group, of course, that believes you can do these things. Among them are H. L. Hunt (you possibly know his background), a few other Texas oil millionaires, and an occasional politician or business man from other areas. Their number is negligible and they are stupid." -- Dwight D. Eisenhower í bréfi til bróður síns Edgars, 1954 Fyrir þá sem hafa ekki fylgst mikið með stefnu Texas olíumilljónamæringsins Bush þá vill hann m.a. afnema social security í núverandi mynd. Ekki amalegt fyrir Bush að vera kallaður heimskur af fyrrverandi forseta og flokksbróður sínum úr fortíðinni.
Svo eru hér enn önnur tilvitnun í Eisenhower.
"Every gun that is made, every warship launched, every rocket fired signifies in the final sense, a theft from those who hunger and are not fed, those who are cold and are not clothed. This world in arms is not spending money alone. It is spending the sweat of its laborers, the genius of its scientists, the hopes of its children. This is not a way of life at all in any true sense. Under the clouds of war, it is humanity hanging on a cross of iron." -- Dwight Eisenhower, April 16, 1953 Mér finnst ótrúlega magnað að lesa þessar tilvitnanir og mér finnst sem hlutirnir hafi þróast í ranga átt og nú sitjum við uppi með nákvæmlega það sem Eisenhower reyndi að vara heiminn við. Bara í dag eru að birtast fréttir um að auknar líkur séu á innrás Bandaríkjanna inn í Íran. Og þrátt fyrir að tími Bush sé að renna út þá er ennþá verið að skipta út mönnum í yfirstjórn heraflans sem hafa andmælt honum. Ef að af stríði verður þá mun það vera þungur baggi á allri heimsbyggðinni í tugi ára og kristallast það sennilega best í ummælum Robert Gates varnarmálaráðherra um hugsanlega innrás "We’ll create generations of jihadists, and our grandchildren will be battling our enemies here in America.", svo mörg voru þau orð. (Hann velur líka hið óþægilega orðaval "we will" en ekki "we would").
Best að enda þetta á tilvitnun:
"I like to believe that people in the long run are going to do more to promote peace than our governments. Indeed, I think that people want peace so much that one of these days governments had better get out of the way and let them have it." -- Dwight D. Eisenhower Þessar tilvitnanir má finna á Wikipedia: Dwight D. Eisenhower
|
|