8.7.08 Eldur og olía Menn eru loksins að gefast upp á því að reyna að halda því fram að stríðið í Írak hafi ekki verið um olíu. Það sem er verra er að það er eins og samfélaginu sé voðalega mikið sama, eins og enginn sé hneykslaður lengur á því að þarna hafi verið ráðist inn í sjálfstætt ríki (með okkar fulltingi) til að tryggja aukið aðgengi að olíu, "já, þetta var bara um olíu - það vissu þetta allir" er viðkvæðið. Boðskapurinn er auðvitað, ef vestrænt stórveldi beitir yfirgnævandi herstyrk sínum til að svala fíkn sinni í hráefni annarra þjóða, þá er öllum sama, "það vissu þetta allir". Nánari umfjöllun hjá New York Times
3.7.08 Radiohead spilaðir á gamlan tölvubúnað = snilld Stundum þá rekst ég á eitthvað sem mér finnst alveg sjúklega geggjað. Þetta vídeó er einn af þeim hlutum. Þessi náungi tók sig til og remixaði gæðalagið Nude með Radiohead. Gott og vel - en það sem gerir þetta remix sjúklega geggjað er að hann spilar trommurnar með prentara, bassalínuna á skanna, gömul Sinclair Spectrum kemur í stað gítara og síðast en ekki síst þá spilar hann röddina á Thom Yorke á rekka af hörðum diskum! Þetta er auðvitað suddalega hrátt og allt það en einhvernvegin undarlega ávanabindandi - þ.e. ef fólki líkar nýja Radiohead efnið á annað borð. Lagið sjálft byrjar eftir rúma mínútu. Ó, og svo rakst ég líka á þessa 10 ára gömlu útgáfu af Nude, frekar fyndið að horfa á hana.