|
Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja
Þessa dagana er ég að koma í loftið nýjum vef. Vefurinn kallast Reynslubrunnur hugbúnaðarfyrirtækja eða bara reynslubrunnur.gummih.com og verður til að byrja með aðallega unninn upp úr skýrslunni Hugbúnaður á erlendan markað Reynslubrunnur íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja Skýrslan var unnin upp úr viðtölum við 27 einstaklinga, þar af marga helstu frumkvöðla og framkvæmdamenn í íslenskri hugbúnaðargerð. Farið var í gegnum viðamikinn spurningalista og í skýrslunni var reynt að draga fram það helsta sem kom fram um þeirra reynslu af því að stofna fyrirtæki, þróa vöru og koma henni á markað erlendis.
Núna er semsagt hugmyndin að gera þessa skýrslu aðgengilega á netinu, gjaldfrjálst að sjálfsögðu, og reyna að skapa í leiðinni umræðuvettvang um efni hennar. Ég er búinn að opna vefinn þó að hann sé ekki fullkláraður og hægt er að lesa hluta skýrslunnar þar nú þegar.
Þarna er farið yfir vítt efni sem snýr að flestu sem viðkemur hugbúnaðargerð og ferlinu við að koma hugbúnaði á erlendan markað. Aðal áherslurnar eru þróun vöru, rekstur fyrirtækis og erlend markaðssetning en að auki er talsvert að efni sem er tileinkað öðrum viðfangsefnum.
Allar hugmyndir og athugasemdir eru vel þegnar og ef þið hafið áhuga á efninu þá er um að gera að kommenta bara við greinarnar ef þið hafið einhverjar athugasemdir.
Nýsköpun.org
Hann Hjalli vinur minn er ásamt fleirum búinn að koma upp ansi merkilegum vef. Vefurinn kallast nyskopun.org og hann er opinn vettvangur fyrir hugmyndir, upplýsingar og umræður um nýsköpun. Semsagt breiður vettvangur til að efla, auka og hlúa að allri nýsköpun hérna. Þarna er ætlunin að virkja hugvit og grasrótarstarf sem núna er að grassera. Það eru margir sem ganga um með góða hugmynd í kollinum og þurfa bara létt hnik til að koma henni af stað. Þessi vefur er semsagt wiki-vefur og hver sem er getur skráð sig inn og skrifað efni þarna, komið með hugmyndir, eða rætt leiðir til að hjálpa öðrum hugmyndum. Miðla þekkingu sem kemur öðrum til góða. Því með því að hvetja sprotastarfið sem mest við megum þá komum við auðvitað okkur sjálfum til góða.
Jæja - og hvað svo?
Já, ég get bara ekki orða bundist. Ég er, líkt og margir aðrir, alveg gríðarlega ánægður með Barack Obama sem nýjan Bandaríkjaforseta. Ég er að eðlisfari ansi tortrygginn gagnvart stjórnmálamönnum en þrátt fyrir að ég hafi fylgst grannt með Obama í rúmlega ár núna þá kann ég ennþá alveg fjandi vel við hann. Ég hlustaði m.a. á bókina hans sem kallast Audacity of hope og fjallar í stórum dráttum um viðhorf hans til lífsins og aðdraganda kjörs hans inn á Bandaríkjaþing. Þarna finnst mér fara maður sem talar af skynsemi og hefur hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. En hvernig forseti hann mun reynast verður auðvitað bara að koma í ljós og hann verður auðvitað dæmdur af verkum sínum en ekki loforðunum. En þar er hann svosem heppinn líka, því að taka við af Bush er svona sirka eins og að stíga á svið eftir að næsti söngvari á undan sofnaði þar í eigin ælu.
|