|
Þráðlaust net í Linux
Sem tiltölulega nýr notandi Ubuntu (8.04 64bit) þá er ennþá ýmislegt að koma mér á óvart.
Eitt sem maður heyrði frekar oft um Linux er að það sé svolítið hell að nálgast drivera. Það er kannski eitthvað til í því að fyrir suman búnað er erfitt að fá driver en þetta er þó langt frá því að vera regla. Í dag var ég til dæmis að uppfæra þráðlausa kortið í tölvunni, losaði mig við lítið USB dongle og fékk mér innbyggt PCI kort. Þetta var eins sársaukalaust og hugsast gat. Slökkti á tölvunni, setti nýja kortið í, kveikti aftur og gat strax farið á netið. Ekkert setup, enginn driveradiskur, engin EULA, einfaldlega plug'n'play, núll vesen.
Til að gæta sanngirni verð ég samt að segja að ég var búinn að prófa annað þráðlaust kort áður - það virkaði eins, ekkert vesen í upphafi en tengingin við það vildi oft detta út svo ég setti það í aðra tölvu hjá mér sem er ekki með Ubuntu. Það er því greinilega ekki sama hvaða tegund af netkorti maður fær sér. Það fyrra sem ég prófaði var frá Gigabyte og það var með stöðugt vesen en seinna kortið var CNet CWP-854 og hefur ekki verið með neitt vesen.
Fyrir þá sem eru að pæla í þráðlausu korti fyrir Ubuntu þá mæli ég með að skoða þessa síðu sem er með lista yfir mörg helstu þráðlausu kortin og sagt hvort þau virka eða ekki beint úr kassanum.
Maður hefði kannski átt að sjá þetta fyrir?
Þetta er ljósmynd sem ég átti í myndasafninu mínu.
Æh, fyrirgefðu góða skilti, ég vissi það ekki þá, en þú varst eini vinur minn og reyndir að vara mig við. En ég tók bara ekki mark á þér... af því að ég er kjáni sem trúir ekki á töframátt skilta.
Takk, riddari götunnar!
Í dag fór ég til lögreglunnar. Ekki til að játa handahófskenndar sakir eða til að kæra útrásarséní heldur til að sækja veskið mitt sem ég af fimi minni glataði á mánudag þegar ég var að hjóla heim úr vinnunni. Í veskinu voru öll greiðslukortin mín, segulkort sem ég þarf að nota út um allt í vinnunni, ökuskírteinið mitt, verðmæti upp á um 10þús ásamt fleiru minna mikilvægu.
Satt að segja hélt ég að þetta væri allt horfið og mikið svakalega er maður allslaus án veskis, sérstaklega í vinnunni þar sem ég var allt í einu orðinn eins og draugur, gat ekki opnað hurðir, stjórnað lyftunni eða fengið mér mat. En, það var ekki öll von úti, einhver hafði fundið veskið mitt úti á götu, útrignt og af útlitinu að dæma búið að keyra duglega yfir það. Sá hinn sami hafði síðan farið samviskusamlega með það til lögreglunnar sem síðan bjallaði í mig og lét mig vita. Allur pappír í því var orðinn að drullu, veskið sjálft var orðið eins og blaut húð að koma við það en það var í lagi með öll plastkortin þannig að í raun var þetta eins og kærkomin tiltekt í veskinu bara.
En allavega, til þín, riddari götunnar, sem ert á ferli og bjargar munum samborgara þinna, óséður og óverðlaunaður. Takk! (Þessi mynd er frá Lalla)
|